Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sorgarmiðstöð og Hafnarfjarðarbær hafa framlengt samstarfssamning sinn til fjögurra ára. Með honum tryggir miðstöðin sér aðstöðuna í lífsgæðasetri í St. Jó gegn því að bjóða upp á fræðslu á sviði sorgarúrvinnslu fyrir leik- og grunnskóla og stofnanir bæjarins. Þjónustan verður því áfram aðgengileg fyrir íbúa og aðra á besta stað í sveitarfélaginu.
Sorgarmiðstöð og Hafnarfjarðarbær hafa framlengt samstarfssamning sinn til fjögurra ára — til ársins 2028. Þjónusta Sorgarmiðstöðvarinnar verður því áfram með aðstöðu í Lífsgæðasetri í St. Jó og býður upp á fræðslu á sviði sorgarúrvinnslu fyrir grunnskóla og stofnanir bæjarins sem og aðra.
Sorgarmiðstöð fer afar vel við starfsemi Lífsgæðasetursins St. Jó. enda stuðlar setrið að bættum lífsgæðum. Þar er fylgt þeim anda, hlýju og umhyggju sem húsið hefur alla tíð borið með sér. Þetta er andinn sem St. Jósefssystur sköpuð í húsinu.
„Fólk veit af okkur hér í Lífsgæðasetrinu og við erum reiðubúin þegar það þarf á okkur að halda. Sorgarmiðstöð hefur fest sig í sessi og starfsemin eflst í húsnæðinu með stuðningi Hafnarfjarðarbæjar. Okkur líður einstaklega vel í Lífsgæðasetrinu og fögnum því að vera hér áfram,“ segir Berglind Arnardóttir, stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri, ritaði undir samninginn fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar. „Við hjá Hafnarfjarðarbæ erum mjög stolt af því að styðja starfsemi Sorgarmiðstöðvar og gefa þannig bæjarbúum áfram tækifæri til að nýta þá mikilvægu þjónustu sem þar er veitt. Það er fólki ákaflega dýrmætt á erfiðasta tíma í lífi sínu, þegar ástvinur fellur frá, að geta leitað til Sorgarmiðstöðvarinnar og þess góða fólks sem þar starfar,“ segir Rósa.
Sorgarúrvinnsla miðar að bættri lýðheilsu með því að efla og styðja við andlega, líkamlega og félagslega heilsu fólks eftir ástvinamissi. Markmið Sorgarmiðstöðvar er að hlúa að syrgjendum og aðstandendum þeirra bæði börnum og fullorðnum, veita þeim von, styrk og leiðir í sorgarúrvinnslu.
Fræðsluerindi og stuðningshópastörf eru fastir liðir hjá Sorgarmiðstöð. Fjöldi syrgjenda sækir stuðningshópastarf hjá Sorgarmiðstöð og er sú starfsemi umfangsmest. Hópastörfin eru með mismunandi áherslum og eru margir minni hópar innan hvers þeirra. Sorgarmiðstöð er einnig með ráðgjafaþjónustu þar sem hægt er að óska eftir einstaklings eða hópsamtali.
Hlutverk Lífsgæðasetursins er að halda utan um hóp fagfólks og samtaka sem vinna að því að auka lífsgæði fólks.
Tekið er á móti fólki með hlýhug og fagmennsku að leiðarljósi. Þjónustan er fjölbreytt, boðið er upp á ráðgjöf og samtalsmeðferð, námskeið og fræðslu, stuðning, heilsuvernd og sjúkraþjálfun. Auk Sorgarmiðstöðinni hafa Alzheimersamtökin, Parkinsonsamtökin, Seiglan og Taktur sjúkraþjálfun aðsetur í húsinu.
Berglind Arnardóttir stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar, og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og undirrituðu samstarfssamninginn. Hér með þeim er Ína Ólöf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar.
„Þetta hefur verið draumur hjá mér síðan ég var krakki,“ segir Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður sem hefur ásamt eigendum Sydhavn blásið…
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.