Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra fjármálasviðs Hafnarfjarðarbæjar. Leitað er að öflugum leiðtoga til að stýra fjármálasviði Hafnarfjarðarbæjar og leiða áfram þau mikilvægu verkefni sem heyra undir sviðið. Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2023.
Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra fjármálasviðs Hafnarfjarðarbæjar. Leitað er að öflugum leiðtoga til að stýra fjármálasviði Hafnarfjarðarbæjar og leiða áfram þau mikilvægu verkefni sem heyra undir sviðið.
Sviðsstjóri fjármálasviðs ber ábyrgð á daglegri fjármálastjórn sveitarfélagsins og stýringu fjármálasviðs. Undir sviðið heyrir hagdeild, reikningshald, fjárreiður, innkaupastjórn og launavinnsla. Hlutverk fjármálasviðs er að leiða fjárhagsáætlanagerð innan sveitarfélagsins, tryggja hagkvæman rekstur og innkaup, annast fjárstýringu og lánastýringu, auk þess að veita stjórnendum ráðgjöf og bestu mögulega yfirsýn yfir fjármál og rekstur starfseininga og sveitarfélagsins í heild.
Umsókn óskast fyllt út á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar: hfj.is/atvinna. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi, geirlaug@hagvangur.is og Sigurður Nordal, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar, sigurdurnordal@hafnarfjordur.is
Hittu hamingjuna í Hafnarfirði í september. Fjöldi viðburða sem efla andann, bæta líðan okkar og hvetja okkur til að auka…
Búist er við fjölda gesta á búninga- og leikjasamkomunni Heimar og Himingeimar í Hafnarfirði um helgina. Hátíðin hefst kl. 17.…
Hafnarfjarðarbær hefur gengið frá kaupum á nýju húsnæði fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar í verslunarmiðstöðinni Firði. Nútímavæða á 102 ára gamla bókasafn…
Hafnarfjarðarbær vekur athygli á möguleika fatlaðs fólks sem þarfnast sértæks stuðnings vegna fötlunar sinnar til að sækja um styrki skv.…
Það var sannkallað stuð fyrir alla fjölskylduna í brakandi blíðu á glæsilegri hátíð í Hellisgerði í gær. Þar mátti heyra…
Búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar verður haldin á Bókasafni Hafnarfjarðar 30. ágúst til 1. september. Þar munu ævintýrin gerast.
Báðir álfar en þó ekki bræður, Íþróttaálfurinn og Benedikt búálfur, verða meðal þeirra sem verða á kreiki í Hellisgerði sunnudaginn…
Nýtt skólaár innan grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar hefst á morgun og munu um 4.100 börn og ungmenni setjast á skólabekk þetta haustið.…
„Ánægjulegt að nú sjáum við Hafnfirðingar fram á að umtalsvert meira fjármagn verður sett í að leysa helstu umferðarhnútana í…
Það var sannkölluð matar- og tónlistarveisla fyrir alla fjölskylduna á hinni árlegu Vegan festival á Thorsplani í gær. Þar sem…