Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Víðistaðatún er fallegur almenningsgarður umkringdur hrauni við Víðistaðakirkju og skátaheimili Hraunbúa. Á svæðinu ættu allir að geta fundið sér eitthvað að gera við sitt hæfi.
Svæðið státar af fjölmörgum útilistaverkum sem tilvalið er að skoða og börn hafa gaman af að leika sér í.
Nóg er að gera fyrir börnin. Þau geta leikið sér í aparólu, ærslabelg og kastala. Einnig er þar skógarlundur sem gaman er að leika sér. Þegar allir eru orðnir svangir er hægt að grilla í grillhúsi sem er rétt hjá kastalanum.
Í garðinum er eini tennisvöllur Hafnfirðinga og einnig sex holu frisbígolfvöllur. Frítt er á völlinn og ekki nauðsynlegt að bóka fyrirfram. Upplýsingaskilti um leikreglur og skipulag vallarins er á túninu fyrir neðan Víðistaðakirkju. Hér er vallarkort fyrir Frisbígolfvöllinn á Víðistaðatúni.
Á Víðistaðatúni er tjaldsvæði sem er opið frá miðjum maí fram í lok ágúst.
Á svæðinu er stórt viðburðatún þar sem fjölmargar uppákomur eru haldnar árlega. Þar má nefna sýningar Hundaræktarfélags Íslands og Víkingahátíðina sem Rimmugýgur sér um, auk þess sem Krikketsamband Íslands er með reglubundnar æfingar á svæðinu yfir sumartímann.