Um starfsemi grunn- og leikskóla, íþrótta- og menningarmála

Fréttir

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa síðan á föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga og menningarhúsa næstu vikna í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli sveitarfélaga og innan sveitarfélaga eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga.

Tilkynning frá sveitarfélögunum á
höfuðborgarsvæðinu um starfsemi grunn- og leikskóla, íþrótta- og menningarmála á tímum samkomubanns. 

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa síðan á
föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga
og menningarhúsa næstu vikna í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og
stjórnvalda. Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi
hætti milli sveitarfélaga og innan sveitarfélaga eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu
beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum
sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við
eiga.

Starfsdagur í grunn- og leikskólum höfuðborgarsvæðisins mánudaginn 16. mars

Rétt er að ítreka að á morgun, mánudaginn 16. mars
verður starfsdagur í grunn- og leikskólum höfuðborgarsvæðisins þar sem
stjórnendur og starfsfólk vinna nú að skipulagningu skólastarfs miðað við
ofangreindar ákvarðanir. Frekari upplýsingar um skólastarf verður að finna á
heimasíðum skólanna. Þá verða sundstaðir og íþróttamiðstöðvar lokaðar til að
vinna að útfærslum á starfsemi þeirra miðað við tilmæli.

Grunnskólar á
höfuðborgarsvæðinu

Kennsla verður í hópum með ekki fleiri en 20
nemendum og ekki verður um blöndun hópa að ræða innan skóladagsins. Skólar munu
halda úti eins miklu skólastarfi og kennslu og kostur er við þessar aðstæður.
Það verður í höndum hvers sveitarfélags og skóla að útfæra skiptingu kennslu
milli viðveru í skóla og náms heima. Nákvæm útfærsla verður því ólík milli
skóla á höfuðborgarsvæðinu.

Öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum
mun falla niður og íþrótta- og sundkennsla verður í formi hreyfingar á skólalóð,
inni í hópastofum eða annarrar útikennslu. Hver skóli skipuleggur nánari
tilhögun skóladagsins og kennslutilhögun. Sér- og starfsdeildir verða með
óbreytta starfsemi eftir fremsta megni. Þá verður matarþjónusta í boði í skóla
ef mögulegt er að koma því við. Öll neysla á mat fer fram í heimastofum eða í
matsal skóla þar sem því verður við komið. Vettvangsferðir falla niður ásamt
ferðum í skólabúðir.

Leikskólar á
höfuðborgarsvæðinu

Gert er ráð fyrir því að halda starfsemi leikskóla
gangandi á sem öruggastan hátt með þeim hætti að börn verði í sem minnstum
hópum og aðskilin sem mest. Vegna þessa raskast skólastarf í leikskólum og
opnunartími getur breyst s.s. vegna þrifa sem nauðsynleg eru. Hver leikskóli á
höfuðborgarsvæðinu mun upplýsa foreldra um útfærslu á skólastarfi á heimasíðu
eða í gegnum aðra miðla.

Sundstaðir og
íþróttamiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu

Fjöldatakmarkanir
miðast við 100 manns í sama rými í einu og tveggja metra fjarlægð verði milli
einstaklinga. Sundlaugar eiga á flestum tímum dagsins að geta uppfyllt fyrra
skilyrðið en tveggja metra fjarlægð er erfitt að uppfylla í sundlaugum og í
íþróttahúsum. Það er ljóst að samkvæmt þeim tilmælum sem borist hafa, mun
íþróttastarf og rekstur íþróttamannvirkja riðlast á næstunni. Endurskipuleggja þarf verkferla með tilliti til
nýrra krafna um sóttvarnir og til að tryggja öryggi gesta og starfsmanna
sundlauga og íþróttamiðstöðva. Allir sundstaðir og íþróttamiðstöðvar verða því
lokaðar mánudaginn 16. mars og dagurinn nýttur til ákvarðanatöku um framhaldið
í samstarfi við viðeigandi aðila.

Frístundaheimili og
félagsmiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu

Frístundaheimili verða opin í framhaldi af
skóladegi yngstu nemenda en viðbúið er að starfsemi muni að einhverju leyti
skerðast. Starfsemi félagsmiðstöðva tekur breytingum þar sem
megináhersla verði á að mæta félagsþörf án þess að skörun verði milli hópa eða
bekkja. Til dæmis með hópaskiptingu eða árgangaskiptingu í opnunum og lögð
áhersla á hópastarf en ekki stærri samkomur. Nákvæm útfærsla verður ólík milli
félagsmiðstöðva.

Tónlistarskólar og
skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu

Tímar í hljóðfærakennslu og söngkennslu fara fram í
húsnæði eða heimastöð tónlistarskóla eða skólahljómsveita. Hóptímar s.s.
hljómsveitartímar, hópæfingar, tónfundir, forskóli og tónfræðitímar falla
niður. Allir viðburðir tengdir þessari starfsemi falla niður. Viðmið þessi taka
einnig til tónlistarnemenda sem eru eldri en 18 ára. Lögð er áhersla á að
leitað sé leiða til að viðhalda virkni óháð fjarveru og niðurfellingu
tónlistartíma. Nákvæm útfærsla verður ólík milli skóla.

Skólaíþróttir og
íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu

Ekki verður hefðbundin íþrótta- og sundkennsla á
vegum grunnskóla í samkomubanninu. Viðkomandi húsnæði verður lokað fyrir
skólakennslu og íþrótta- og sundkennarar vinna með námshópnum í heimastofu eða
úti á skólalóð. Íþróttafélög munu gefa út eigin tilkynningar um íþróttaæfingar.
Tilkynningar eru þegar komnar frá íþróttasamböndum um leikjabann.

Menningarstofnanir á
höfuðborgarsvæðinu

Söfnin á höfuðborgarsvæðinu, listasöfn, bókasöfn og
sögusöfn halda óbreyttum opnunartíma þrátt fyrir samkomubann en boðuðum
viðburðum verður aflýst eða frestað, svo sem leiðsögnum, listasmiðjum og
málþingum, á meðan samkomubannið er í gildi. Á söfnum eru gestir hvattir til að
hafa hæfilega fjarlægð sín á milli. Áfram verður lögð áhersla á aukin þrif í
söfnunum á höfuðborgarsvæðinu umfram venjubundna ræstingu.

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að
fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og
heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga. Þá eru íbúar
jafnframt hvattir til að fylgja leiðbeiningum landlæknis um viðbrögð við
veirunni inn á covid.is
Við erum öll almannavarnir!

Ábendingagátt