Starfshópur stofnaður um nýjan golfvöll í landi Hafnarfjarðar

Fréttir

Skipaður hefur verið starfshópur sem finna á nýjum golvelli stað í landi Hafnarfjarðar. Samráð verður haft við hagsmunaaðila.

Vilja nýjan golfvöll í Hafnarfirði

Bæjarráð hefur samþykk að stofnaður verði starfshópur sem hafi samráð við hagaðila um nýjan golfvöll í landi Hafnarfjarðar. Starfshópurinn á að finna nýjum golfvelli stað í landi Hafnarfjarðar. Það verður gert í samráði við hagsmunaaðila, þar á meðal Golfklúbbinn Keili og Golfklúbbinn Setberg.

Meginverkefni hópsins er:

  • Að kanna mögulegar staðsetningar fyrir nýjan golfvöll í landi Hafnarfjarðar og koma með tillögu að staðsetningu
  • Að móta tillögur um gerð vallar og fyrirkomulag rekstrar á nýjum golfvelli

Áætlað er að tillögur hópsins verði tilbúnar og þær kynntar bæjarráði í júní.

Á síðasta ári bárust bæjarráði bréf frá golfklúbbunum Keili og Setbergi þar sem þeir óskuðu eftir viljayfirlýsingu um nýja velli. Í bréfi Golfklúbbsins Keilis segir að um 4500 manns séu á biðlistum golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu. Félagsmenn klúbbsins séu 1850 og biðlistinn lengist á hverju ári.

„Nýr golfvöllur krefst mikillar skipulagsvinnu og góðs undirbúnings sem Golfklúbburinn Keilir hefur reynslu af eftir áratuga uppbyggingu á núverandi velli, sem talinn er einn sá besti á landinu.“

Golfklúbburinn Setberg benti einnig á langan biðlista. Meðlimir væru nú 900 og hundruð bíði á hliðarlínunni.

„Golfklúbburinn Setberg leggur mikla áherslu á að koma að hugmyndavinnu við staðsetningu í nýju landi fyrir íþróttastarfsemi og golfvöll með það að markmiði að íþrótta- og útivistarf verði sem öflugast á svæðinu og í góðri sátt við íbúa og önnur félagasamtök í Hafnarfirði,“ segir þar.

Við bíðum spennt eftir niðurstöðum starfshópsins!

Ábendingagátt