Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær er nú að stíga fyrstu skref í heildstæðri stefnumótun samkvæmt samþykkt bæjarráðs Hafnarfjarðar frá 12. ágúst 2021. Verkefnið snýst um að móta framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð til ársins 2035 og á þeim grunni byggja upp meginmarkmið sem styðja við mótun áherslna til skemmri tíma.
Hafnarfjarðarbær er nú að stíga fyrstu skref í heildstæðri stefnumótun samkvæmt samþykkt bæjarráðs Hafnarfjarðar frá 12. ágúst 2021 . Verkefnið snýst um að móta framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð til ársins 2035 og á þeim grunni byggja upp meginmarkmið sem styðja við mótun áherslna til skemmri tíma. Slíkt er gert með stefnumarkandi áætlunum þar sem fram koma mælanleg markmið til skemmri tíma og fer sú vinna fram sem undanfari fjárhagsáætlanagerðar. Í verkefninu er stigið skref í þá átt að tengja stefnur sveitarfélagsins í auknum mæli við úthlutun fjármagns og þar af leiðandi árangur.
Verkefnið verður unnið með víðtækri aðkomu kjörinna fulltrúa, í samráði við nefndir og ráð sem starfa innan Hafnarfjarðarbæjar. Þá mun fjölmargt starfsfólk koma að verkefninu þvert á öll svið sveitarfélagsins. Síðast en ekki síst verður fundað með ýmsum hagsmunahópum íbúa og atvinnulífs innan Hafnarfjarðar. Þá verði einnig horft til þess að ná fram sjónarhorni íbúa í samráði á vef sveitarfélagsins.
Í þessari heildstæðu stefnumótun verður sérstaklega horft til þess að beita heildrænni nálgun gagnvart innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þannig verði heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna ekki eingöngu grundvöllur þvert á starfsemi sveitarfélagsins heldur einnig leiðarljós í framtíðarsýn og heildarstefnu Hafnarfjarðar á sviði sjálfbærrar þróunar. Bæjarráð hefur tilnefnt í stýrihóp til þess að leiða verkefnið. Í hópnum sitja Jón Ingi Hákonarson, Valdimar Víðisson, Sigurður Þ. Ragnarsson, Arnbjörn Ólafsson, Adda María Jóhannsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir. Með hópnum starfa Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs, Sigurður Nordal, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ásamt Arnari Pálssyni ráðgjafa hjá ARCUR. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í upphafi árs 2022.
Fyrstu fundir með fulltrúum fyrirtækja verða haldnir dagana 28. október og 3. nóvember frá kl. 15-16.30. Nánari upplýsingar og skráning fer fram hér
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…