Á að reisa grindverk eða skjólvegg?

Fréttir

Um slíkar framkvæmdir gilda ákveðnar reglur sem vert er að kynna sér áður en farið er af stað. Huga þarf að lóðarmörkum hvort heldur sem er við lóð nágrannans eða að bæjarlandi. Heimilt er að reisa skjólvegg og girðingar sem eru allt að 1,8m að hæð og eru ekki nær lóðarmörkum en 1,8m.

Stendur til að reisa grindverk eða koma fyrir skjólvegg? 

Um slíkar framkvæmdir gilda ákveðnar reglur sem vert er að kynna sér áður en farið er af stað. Huga þarf að lóðarmörkum hvort heldur sem er við lóð nágrannans eða að bæjarlandi. Heimilt er að reisa skjólvegg og girðingar sem eru allt að 1,8m að hæð og eru ekki nær lóðarmörkum en 1,8m. Sækja þarf um heimild til byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar fari grindverk nær lóðarmörkum en hæð þess. Einnig skal leggja fram til byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar samþykki nágranna/ aðliggjandi lóðarhafa vegna grindverks á eða við lóðarmörk. Við gerð grindverks og annarra skjólveggja eru íbúar einnig hvattir til að huga að því hvort slíkar framkvæmdir hafi mögulega áhrif á umferðaröryggi með skerðingu sjónrænna
tenginga við götu og gangstétt. 

Á heimasíðu Mannvirkjastofnunar má kynna sér byggingarreglugerðina nánar undir flipanum lög og reglugerðir. Sérstaklega er bent á grein 2.3.5. fyrir þá sem eru í framkvæmdar- hugleiðingum á lóð sinni en þar er m.a. fjallað um framkvæmdir á lóð, skjólveggi, girðingar og smáhýsi á lóð.

Ábendingagátt