Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Áhersla verður lögð á að nútímavæða og þróa þjónustu sveitarfélagsins með hagnýtingu upplýsingatækni og skýrari verkferlum. Aukin þjónusta við íbúa og fyrirtæki verður áfram grundvallarverkefni sveitarfélagsins þar sem forvarnir verða í forgrunni og áfram unnið að stórum fjölbreyttum innleiðingarverkefnum.
791 milljón króna afgangur af rekstri á árinu 2020. Áhersla á aukna þjónustu og þróun og eflingu stafrænna þjónustuleiða
Samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun verður 791 milljón króna afgangur á A og B hluta á árinu 2020. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði tæp 12% af heildartekjum eða 3,6 milljarðar króna. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er sterk. Skuldaviðmið heldur áfram að lækka, er áætlað 120% í árslok 2019 og verður samkvæmt áætlun 105% í lok árs 2020. Áhersla verður lögð á að nútímavæða og þróa þjónustu sveitarfélagsins með hagnýtingu upplýsingatækni og skýrari verkferlum. Skipulagsbreytingar, sem gerðar voru nýlega með stofnun á nýju sviði þjónustu og þróunar hjá sveitarfélaginu, eru til þess fallnar að bæta og þróa þjónustuna og verkferla í takti við breyttar þarfir og umhverfi. Aukin þjónusta við íbúa og fyrirtæki verður áfram grundvallarverkefni sveitarfélagsins þar sem forvarnir verða í forgrunni og áfram unnið að stórum innleiðingarverkefnum sem snúa m.a. að fjölþættri heilsueflingu allra aldurshópa, snemmtækri íhlutun, fjölmenningu, notendasamráði og umbótum á starfsumhverfi nemenda og starfsfólks. Leikskólagjöld haldast þau sömu nú sjöunda árið í röð.
Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2020:
„Fjárhagsáætlunin ber þess glöggt merki að rekstur Hafnarfjarðar gengur vel og fjárhagur bæjarins er traustur. Skuldaviðmiðið heldur áfram að lækka og enn verður einungis framkvæmt fyrir eigið fé sveitarfélagsins og innkomu af lóðasölu,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. „Lögð er áhersla á að tryggja og efla þjónustuna við bæjarbúa en halda gjöldum í lágmarki og sýna ráðdeild í rekstri og fjárfestingum“.
Áhersla á forgangsröðun í grunnþjónustu
Fjárheimild til framkvæmda árið 2020 er samtals 3.125 milljónir króna. Hluti af þessari upphæð fer í frekari uppbyggingu á suðurhöfninni, kaup á félagslegu húsnæði og framkvæmdir veitna. Lögð er áhersla á forgangsröðun í grunnþjónustu, svo sem skólamannvirkjum, samgöngum, fráveitumálum og endurnýjun á Sólvangi. Á árinu er áætlað að gera samgönguáætlun fyrir Hafnarfjörð þar sem áhersla verður lögð á umferðaröryggismál og vistvænar samgöngur fyrir íbúa bæjarins. Ásvallabraut milli Skarðshlíðar og Kaldárselsvegar fer í framkvæmd og gert er ráð fyrir að sú framkvæmd taki tvö ár auk þess sem tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi lýkur á árinu. Gert er ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum við nýjan leik-, tónlistar- og grunnskóla í Skarðshlíð sem hófust á árinu 2017 og að kostnaður við þessar framkvæmdir verði í kringum 800 milljónir króna á árinu. Unnið verður að frágangi á nýbyggingarsvæðum víðsvegar um bæinn sem og gerð nýrra stíga til að stuðla að vistvænni samgöngumátum. Sérstakt fjármagn er ætlað til vinnu að ýmsum verkefnum á sviði umhverfismála auk þess sem áfram verður unnið að undirbúningi á uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar er lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag. Fjárhagsáætlun nær til næsta árs auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2021-2023. Gert er ráð fyrir að síðari umræða og afgreiðsla fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn verði miðvikudaginn 11. desember.
Meðfylgjandi eru drög að fylgigögnum fjárhagsáætlunar 2020-2023:
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…