Sterk fjárhagstaða Hafnarfjarðarkaupstaðar

Fréttir

Rekstrarafgangur A og B-hluta nam 1.326 milljónum
króna. Engin lán voru tekin árið 2017. Allar framkvæmdir ársins voru
fjármagnaðar með eigin fé. Skuldaviðmið komið vel niður fyrir viðmið
eftirlitsnefndar

Fjármálastaða Hafnarfjarðarkaupstaðar hefur styrkst
umtalsvert á undanförnum árum. Þessi styrking kemur vel fram í ársreikningi
sveitarfélagsins fyrir árið 2017. Rekstrarafgangur fyrir A- og B-hluta nam
1.326 milljónum króna og veltufé frá rekstri var 3.646 milljónir króna, sem
samsvarar 14,4% af heildartekjum. Þessi góða afkoma hefur leitt til þess að
sveitarfélagið tók engin lán á árinu 2017 sem er annað árið í röð og
langtímaskuldir voru greiddar niður um 300 milljónir króna umfram gjaldfallnar
afborganir á árinu. Framkvæmdir standa yfir við nýjan grunn-, leik- og
tónlistarskóla í Skarðshlíð, nýtt æfinga- og kennsluhúsnæði hjá Haukum, nýtt
hjúkrunarheimili við Sólvang o.s.frv. Framkvæmdir ársins voru allar
fjármagnaðar með eigin fé. Skuldaviðmið er komið niður í 135% og
skuldahlutfallið í 159% fyrir A- og B-hluta.

Rekstrarafkoma
bæjarins fór fram úr björtustu vonum en annað árið í röð voru engin ný lán
tekin og haldið áfram að greiða niður skuldir. Þá voru allar framkvæmdir ársins
fjármagnaðar fyrir eigið fé. Verði haldið áfram á sömu braut er bjart framundan
í Hafnarfirði,“
segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs
Hafnarfjarðar.

Rekstrarniðurstaða ársins fyrir A- og B-hluta var jákvæð um
1.326 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 554
milljónir króna. Rekstrarniðurstaða ársins fyrir A-hluta var jákvæð um 740
milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 45
milljónir króna.

Skuldaviðmið
Hafnarfjarðarbæjar er nú komið niður í 135% sem sýnir að fjárhagur
sveitarfélagsins hefur styrkst verulega undanfarin ár. Þá er ánægjulegt að sjá
hve mjög fjármagnskostnaður bæjarins lækkar á milli ára og er mikilvægt að sú
þróun haldi áfram, enda er peningum bæjarbúa betur varið á flestan annan hátt
en í vaxtagjöld. Þessi góða rekstrarniðurstaða kemur í kjölfar ítarlegrar
endurskipulagningar á rekstrinum og sýnir að með ráðdeild, aga og skynsamlegri
fjármálastjórn er hægt að bæta þjónustu við bæjarbúa á sama tíma og fjárhagur
bæjarins er efldur til muna.“ 
Bætir Rósa við.

Helstu frávik voru að skatttekjur voru 477 milljónum króna
hærri en áætlun gerðu ráð fyrir, framlög jöfnunarsjóðs voru 309 milljónir króna
umfram áætlun og aðrar tekjur voru 321 milljónir króna umfram áætlun. Auk þess
var tekjufært vegna seldra lóða um 336 milljónir króna. Breyting á
lífeyrisskuldbindingu var 1.047 milljónum krónum hærri en áætlun gerði ráð
fyrir en þar munaði mestu um 677 milljóna króna gjaldfærslu vegna uppgjörs við
Brú lífeyrissjóð vegna laga nr. 127/2016. Laun og launatengd gjöld voru á
áætlun og annar rekstrarkostnaður var 184 milljón krónum hærri en áætlun gerði
ráð fyrir. Fjármagnsliðir voru um 580 milljónum krónum lægri en áætlun gerði
ráð fyrir vegna lægri verðbóta og niðurgreiðslu skulda. Rekstur málaflokka var
samkvæmt fjárhagsáætlun. Veltufé frá rekstri nam 3.646 milljónum króna eða
14,4% af heildartekjum.

Greiðslur langtímaskulda námu alls 1,6 milljarði króna eða
um 300 milljónir króna umfram afborganir samkvæmt lánasamningum. Engin ný lán
voru tekin á árinu annað árið í röð. Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar hefur því
styrkst enn frekar á árinu og er skuldaviðmið í árslok 2017 komið í 135% og er
vel undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og
eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

Fjárfestingar á árinu 2017 námu 3.305 milljónum króna en
áætlun gerði ráð fyrir 3.816 milljónum króna. Meðal helstu framkvæmda voru
bygging nýs skóla í Skarðshlíð 466 milljónir króna, bygging hjúkrunarheimilis
511 milljónir króna og bygging æfingar- og kennsluhúsnæðis að Ásvöllum 241
milljónir króna. Kaupverð íbúða félagsþjónustu nam 257 milljónum króna, kaup á
húsnæði skattstofunnar sem hugsað er undir starfsemi Félagsþjónustu nam 259
milljónum króna og kaup á St. Jósefsspítala nam 106 milljónum króna.
Framkvæmdir við gatnagerð námu 1.343 milljónum króna en tekjur vegna
gatnagerðargjalda og byggingaréttar námu 1.415 milljónum króna. Gatnagerðargjöld
færð til lækkunar á framkvæmdakostnaði þar til verki lýkur námu 1.079 milljónum
króna en tekjufærð gatnagerðargjöld námu 336 milljónum króna.

Heildareignir í lok árs námu samtals 51.173 milljónum króna
og hafa þær hækkað um 2.871 milljónir milli ára. Heildarskuldir og
skuldbindingar námu samtals 40.187 milljónum króna og hafa hækkað um 1.030
milljónir króna á milli. Langtímaskuldir lækkuðu um 1.203 milljónir króna,
lífeyrisskuldbinding hækkaði um 988 milljónir króna og skammtímaskuldir hækkuðu
um 1.283 milljónir króna en munar þar mestu um uppgjör við Brú lífeyrissjóð er
nam 677 milljónum króna og hækkun lánardrottna vegna framkvæmdasamninga um 364
milljónir króna.

Íbúar Hafnarfjarðar voru 29.360 þann 1. desember 2017
samanborið við 28.678 árið áður sem er íbúafjölgun um 682 eða 2,4%.

Ársreikninginn má skoða hér

Ábendingagátt