Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Heilsubærinn Hafnarfjörður samþykkti á haustmánuðum 2022 þátttöku í verkefninu “Sterkari út í lífið” og hóf innleiðinguna í sveitarfélaginu með ókeypis og hvetjandi kvöldstund í Bæjarbíó. Upptaka frá kvöldstund er nú aðgengileg. Í árslok 2022 gaf hópurinn á bak við verkefnið út nýtt smáforrit sem inniheldur fjöldan allan af öflugum æfingum.
Heilsubærinn Hafnarfjörður samþykkti á haustmánuðum 2022 þátttöku í verkefninu “Sterkari út í lífið” og hóf innleiðinguna í sveitarfélaginu með ókeypis og hvetjandi kvöldstund í Bæjarbíó sem bar heiti verkefnisins. Kvöldstundin fór fram í Bæjarbíó 25. október síðastliðinn og innihélt reynslusögur og fræðslu til foreldra og fagaðila auk verkfæra sem eru til þess fallin að efla og styrkja börn og ungmenni. “Sterkari út í lífið” er verkfærakista ætluð foreldrum og fagfólki sem hefur það að markmiði að auka aðgengi að faglegu efni sem hægt er að nota hvar sem er og hvenær sem er til að ýta undir og styrkja sjálfsmynd barna okkar og ungmenna. Verkfærakisturnar eru aðlagaðar út frá aldri og þroska. Í árslok 2022 gaf hópurinn á bak við verkefnið út nýtt smáforrit sem inniheldur fjöldan allan af öflugum hugleiðsluæfingum í mismunandi lengdum fyrir börn, ungmenni og fullorðna.
„Sterkari út í lífið“ er forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði að veita ókeypis aðgang að efni, sem allt er byggt á traustum og gagnreyndum grunni vísindanna, og á að aðstoða uppalendur og fagfólk við að takast á við þær ólíku og oft á tíðum krefjandi áskoranir sem fylgt geta uppvextinum. Sálfræðistofan Höfðabakka er framkvæmdaraðili verkefnisins í samstarfi við stóran hóp fagfólks og félög eins og Heimili og skóla – landssamtök foreldra.
Vettvangurinn er vefurinn www.sterkariutilifid.is og þar má meðal annars finna ýmsa fræðslu og fróðleik um málefni sem allir uppalendur velta fyrir sér á einhverjum tímapunkti:
Metnaðarfullt smáforrit með æfingum til að þjálfa börn og foreldra í slökun og hugleiðslu hefur nú litið dagsins ljós. Smáforritið hentar börnum og uppalendum til að hægja aðeins á í nokkrar mínútur og ná meiri ró. Þannig má bæði stýra betur líðan í vöku og einnig stuðla að betri svefni. Bryndís Jóna Jónsdóttir og Anna Dóra Frostadóttir hjá Núvitundarsetrinu sáu ritstjórn á smáforritinu en á bak við þær liggur mikil reynsla við innleiðingu slíkra æfinga til allra aldurshópa. Einnig er í smíðum ný verkfærakista um félagsfærni. Í þeirri verkfærakistu verða verkefni sem taka til dæmis á fyrirgefningunni, lausn ágreiningsmála, vináttu, hlustun, drama í samskiptum og því að seta sig í spor annarra. Félagsfærni er einn hornsteinn sterkrar sjálfsmyndar og börn og ungmenni þurfa á leiðsögn að halda því hvers kyns árekstrar hafa bein áhrif á sjálfsmynd.
Vefur verkefnisins – Sjálfsmynd – Sterkari út í lífið (sterkariutilifid.is)
Næsta hvetjandi kvöldstund Heilsubæjarins Hafnarfjarðar verður haldin í Bæjarbíói miðvikudaginn 22. mars kl. 20 þar sem hinsegin málefni, fræðsla og forvarnir verða í forgrunni. Stýring kvöldstundar verður í höndum Kristínar Blöndal Ragnarsdóttur kennara og kynjafræðings. Dagskrá er í mótun og verður auglýst von bráðar.
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…