Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Íbúar í Hafnarfirði geta sótt um ýmiss konar styrki.
Bæjarráð veitir félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu tvisvar á ári (fyrir 1. maí og 1. desember). Auglýst er eftir umsóknum á vefnum með góðum fyrirvara. Nánari upplýsingar má lesa í reglum um styrkveitingar bæjarráðs.
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar veitir styrki til menningarstarfsemi og eflingar á menningarlífi í bænum tvisvar á ári (fyrir 1. mars og 1. október). Auglýst er eftir umsóknum á vefnum með góðum fyrirvara.
Markmiðið er að styðja við menningarstarfsemi og styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar. Umsækjendur eða viðburðir verða að tengjast Hafnarfirði á einhvern hátt. Ferðalög, nám eða rekstur er ekki styrkt.
Menningar- og ferðamálanefnd metur umsóknir eftir markmiðum verkefna og hvernig þau nýtast til að efla fjölbreytt menningarlíf, bæjarbúum og hafnfirskum listamönnum til góðs. Tekið er mið af raunhæfni verkefna, kostnaðaráætlun auk tíma- og verkáætlunar. Það er hægt að sækja um samstarfssamning vegna lengri eða endurtekinna verkefna til allt að þriggja ára. Nánari upplýsingar má finna í úthlutunarreglum vegna menningarstyrkja.Sótt er um styrkinn á Mínum síðum á vefnum.
Hlutverk sjóðsins er að efla tónlistarlíf í Hafnarfirði og styrkja nemendur og fræðimenn í í tónlist. Hjónin Friðrik Bjarnason og Guðlaug Pétursdóttir arfleiddu Hafnarfjarðarbæ af miklum hluta eigna sinna. Þau mæltu fyrir að bækur og munir skyldu varðveittir í bókasafninu og að stofnaður væri sjóður til að „efla tónlistarlíf í Hafnarfirði með þeim hætti er best þykir fara hverju sinni, þó einkum til eflingar sönglífs í bænum“, og „styrkja nemendur til tónlistarnáms og fræðimenn í tónlist“.
Styrkveitingar fara fram á afmælisdegi Friðriks 27. nóvember. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum á vefnum.
Íþrótta- og tómstundafélög með rekstrar- eða þjónustusamning við Hafnarfjarðarbæ geta sótt um sérstaka styrki utan samninga. Nánari upplýsingar má finna í reglum um styrki og afmælisgjafir til íþrótta- og tómstundafélaga.
Afreksstyrkir eru veittir vegna Evrópumóta félagsliða og landsliða, heimsmeistarakeppni, Ólympíuleika og ferðastyrkir vegna keppnisferða til útlanda. Afreksmannasjóður ÍBH var stofnaður af stjórn Íþróttabandalags Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæ í janúar 1988 með stofnframlagi hvors aðila um sig. Sótt er um styrkinn rafrænt á vefsíðu ÍBH.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar veitir styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi æskulýðs- menningar- og mannúðarsamtaka. Til að eiga rétt á styrk þurfa félög og félagasamtök að uppfylla skilyrði reglna um styrki til greiðslu fasteignaskatts félaga og félagasamtaka.
Þau félög sem uppfylla skilyrðin og hafa áður fengið styrkinn þurfa ekki að sækja um aftur ef hann er í fjárhagsáætlun ársins.
Fatlað fólk getur sótt um styrk hjá Hafnarfjarðabæ fyrir námskostnaði sem er ekki greiddur samkvæmt öðrum lögum. Námið þarf að hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.
Einnig getur fatlað fólk, 18 ára og eldra, sótt um styrk til verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi. Starfsemin þarf að hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miðar að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.
Hlutverk húsverndarsjóðs Hafnarfjarðar er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í bænum og veita styrki til viðhalds og endurbóta. Sjóðurinn veitir líka styrki til viðhalds og verndunar annarra mannvirkja í bænum sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Framkvæmdir verða þá að vera í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss og sjónarmið húsverndar.
Auglýst er eftir umsóknum í janúar ár hvert. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í reglugerð húsverndarsjóðs Hafnarfjarðar.
Hafnarfjarðarbær veitir styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Styrkir eru veittir til endurbóta á hljóðeinangrun glugga á þeim hliðum húss þar sem hljóðstig reiknast 65 dB(A) eða hærra. Þau sem búa við verstar aðstæður fá forgang.
Sótt er um styrkinn á Mínum síðum á vefnum. Umsækjendur þurfa að lýsa þeim aðgerðum sem eru fyrirhugaðar og umhverfis- og skipulagsþjónusta metur hvort þær eru fullnægjandi.
Börn á aldrinum 6–18 ára fá mánaðarlegan styrk að upphæð 4.500 kr. til lækkunar á þátttökugjöldum í íþrótta- og tómstundastarfi.
Markmið frístundastyrkja er að gera börnum í Hafnarfirði mögulegt að taka þátt óháð efnahag. Bærinn vill efla íþróttastarf og annað forvarnarstarf auk þess að vinna gegn brottfalli í eldri aldurshópum.
Eldri íbúar í Hafnarfirði eiga að geta eflt heilbrigði sitt og hreysti með íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag.
Hafnarfjarðarbær niðurgreiðir íþrótta- og tómstundaiðkun íbúa á aldrinum 67 ára og eldri. Niðurgreiðslan er 4000 kr. fyrir hvern iðkenda á mánuði, eða allt að 48.000 kr. í heildargreiðslu á ári.
Var efnið hjálplegt?