Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sveitarfélögin Árborg, Hafnarfjörður og Reykjanesbær í samstarfi við Menntamálastofnun hafa unnið að þýðingu og staðfæringu á sænsku stöðumatstæki sem hefur verið notað með góðum árangri í Svíþjóð fyrir nýja nemendur af erlendum uppruna.
Sveitarfélögin Árborg, Hafnarfjörður og Reykjanesbær í samstarfi við Menntamálastofnun hafa unnið að þýðingu og staðfæringu á sænsku stöðumatstæki fyrir nýja nemendur af erlendum uppruna sem hefur verið notað með góðum árangri í Svíþjóð. Lagt er m.a. mat á fyrri þekkingu og reynslu sem og læsi og talnaskilning. Meginmarkmið stöðumats er að styðja skólana í að staðsetja nemendur hvað varðar þekkingu og reynslu og auðvelda þar með kennurum og skólastjórnendum að skipuleggja nám hvers nemanda út frá styrkleikum og þörfum.
Í síðustu viku var haldið námskeið í Garðabæ fyrir fjóra grunnskóla sem hafa tekið að sér að hefja innleiðingu á stöðumatinu. Þetta matstæki var hannað af þremur háskólum í Svíþjóð og Skolverket í kjölfar viðamikillar rannsóknar. Þeir skólar sem ríða á vaðið eru Háaleitisskóli í Reykjanesbæ, Lækjarskóli í Hafnarfirði, Vallaskóli á Selfossi og Fellaskóli í Breiðholti. Fleiri tóku þátt í námskeiðinu, m.a. ráðgjafar frá Miðju máls og læsis í Reykjavík og fulltrúar frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þær Þórdís H. Ólafsdóttir og Annelie Hultgren, sem hafa mikla reynslu af kennslu fjöltyngdra barna í Rosengårdskolan í Malmö, kynntu og kenndu á stöðumatstækið og fjölluðu um kennslu í fjöltyngdum bekk. Þátttakendur létu vel af námskeiðinu og munu í kjölfarið leggja stöðumatið fyrir í sínum skólum. Þegar reynsla er komin á notkun þess og prófarkalestri lokið verða haldin fleiri námskeið og öllum skólum á landinu gefið tækifæri til að nýta hið nýja matstæki sem hefur tilfinnanlega vantað hér á landi.
Stýrihópur hefur verið starfandi í tvö ár en hann skipa Aneta Figlarska kennsluráðgjafi í Árborg, Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir kennsluráðgjafi hjá fræðslusviði Reykjanesbæjar, Helgi Arnarson sviðsstjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar, Hrund Harðardóttir kennsluráðgjafi í Árborg, Kolfinna Njálsdóttir deildarstjóri skólaþjónustu Reykjanesbæjar, Kristrún Sigurjónsdóttir kennsluráðgjafi í Hafnarfirði, Þórdís Helga Ólafsdóttir sérkennslufulltrúi grunnskóla í Hafnarfirði og Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri hjá Sveitarfélaginu Árborg.
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…