Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Endursamið hefur verið við Janus heilsueflingu og býðst Hafnfirðingum, 65 ára og eldri, áfram næstu tvö árin að taka þátt í markvissri heilsurækt hjá þeim.
Hafnfirðingum, 65 ára og eldri, býðst áfram næstu tvö árin að taka þátt í markvissri heilsurækt hjá Janusi heilsueflingu. Bærinn endurnýjaði nýverið samstarf sitt við fyrirtækið. Íbúum bæjarins gefst því kostur á hreyfingu með áherslu á þol- og styrktarþjálfun auk fræðslu um næringu og aðra heilsutengda þætti á niðurgreiddu verði. Ávinningurinn samstarfsins er fjórþættur:
Markmiðið er að stuðla að betri velferð og heilsu Hafnfirðinga. Horft er til þess að eldra fólk geti, eins lengi og unnt er, búið við eðlilegt heimilislíf og notið lífsins sem allra lengst.
Verkefnið er skipulagt til tveggja ára og sett upp í fjórum sex mánaða þrepum. Heilsufarsmælingar fara fram áður en þjálfun hefst og síðan á sex mánaða fresti eða við lok hvers sex mánaða þreps. Að þeim tíma liðnum eru sett upp skipulögð framhaldsþjálfun fyrir þátttakendur.
Þjálfun er undir leiðsögn háskólamenntaðra heilsuþjálfara þrisvar í viku fyrstu tvö þrepin, styrktarþjálfun tvisvar sinnum í viku og þolþjálfun einu sinni í viku. Stefnt er að aukinni sjálfbærni og auknu heilsulæsi þátttakenda. Til að mæta aukinni sjálfbærni þátttakenda stendur þeim heilsu-app til boða auk þess sem þeir vinna eftir þjálfunaráætlunum, annars vegar fyrir þolþjálfun og hins vegar fyrir styrktarþjálfun.
Til að styðja enn frekar við heilsutengdar forvarnir og auka vægi heilsulæsis og sjálfbærni eru skipulögð fjögur fræðsluerindi um heilsutengda þætti í hverju þrepi, samtals 16 fræðsluerindi á tveimur árum. Sérstök áhersla er lögð á næringu auk annarra heilsutengdra þátta eins og lyfjanotkun og þjálfun, jafnvægi, svefn og heilsu og núvitund.
Janus Guðlaugsson, íþrótta- og heilsufræðingur, og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri rita undir áframhaldandi samstarf í þágu heilsu Hafnfirðinga.
Janus Guðlaugsson, íþrótta- og heilsufræðingur, stendur að baki þessa verkefnis. Hann vann doktorsverkefnið Fjölþætt heilsuefling 65+ í Hafnarfirði – Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa og hefur á undanförnum árum sérhæft sig í heilsueflingu eldra fólks.
Að baki verkefninu liggja niðurstöður rannsóknar Janusar sem sýna að með markvissri þátttöku í fyrirbyggjandi heilsueflingu eldri aldurshópa megi bæta hreyfigetu, auka afkastagetu þeirra, sér í lagi þol, styrk og hreyfigetu, bæta lífsgæði og koma í veg fyrir hreyfiskerðingu. Þá er markmið einnig að gera fólk sjálfbæra á eigin heilsueflingu, þannig að það geti í kjölfarið valið sér heilsuræktarstað til að sinna heilsueflingu sinni áfram á eigin forsendum.
En hvað kostar þjónustan þá? Janus heilsuefling innheimtir mánaðargjöld af þátttakendum. Innifalið í þátttakendagjöldum eru þátttaka í verkefninu, líkamsræktarkort í heilsuræktarstöð í bænum og önnur þjónusta og umsýsla.
Mánaðargjöld þátttakenda við undirritun þessa samnings eru 13.990 kr. fyrir 12 mánaða binditíma og 14.990 kr. fyrir 6 mánaða binditíma.
Já, það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig! Njótum lífsins saman.
Nánari upplýsingar hjá Janusi heilsueflingu hér.
Suðurbæjarlaug verður opin til klukkan 21 á sunnudögum í stað klukkan 17. Sundhöll Hafnarfjarðar lokar frá 15. júlí. Sumaropnun hefur…
Nú stendur yfir tónlistarveisla í hjarta Hafnarfjarðar. Bílastæði fyrir aftan Ráðhúsið & Bæjarbíó verður að mestu frátekið fyrir hátíðina. Við…
Börnunum sem njóta góðs af íþróttastyrk Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Þeim hefur fjölgað um rúmlega 540 milli ára og eru…
Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref…
Búist er við á þriðja tug þúsunda gesta á tónlistar- og bæjarhátíðina Hjarta Hafnarfjarðar í Bæjarbíói. Björgvin Halldórsson opnar hátíðina…
Gaflarinn Gunnar Már Torfason fagnar 100 ára afmæli í dag. Gunnar, eða Gunni Mössu eins og hann er jafnan kallaður,…
Rútufyrirtækið Teitur Jónasson sinnir allri akstursþjónstu fyrir eldra fólk og íbúa með fötlun í Hafnarfirði frá 1. júlí. Þótt Teitur…
Samningur um uppbyggingu á blandaðri byggð 144 íbúða við Hvaleyrarbraut 26-30 í Hafnarfirði hefur verið samþykktur samhljóða í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Sönghátíð í Hafnarborg stendur nú sem hæst og lýkur 30. júní. Enn er tækifæri að taka þátt og njóta. Á…
Nýta má glerhúsin við jaðar Thorsplans á Strandgötunni fyrir gleðilega viðburði, vörukynningar og þjónustu. Þau má panta í gegnum hafnarfjordur@hafnarfjordur.is.