Styrkir til eflingar tónlistarlífs í Hafnarfirði
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Sjóði Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur. Hlutverk sjóðsins er að efla tónlistarlíf í Hafnarfirði og styrkja hafnfirska nemendur til framhaldsnáms í tónlist og fræðimenn í tónlist.

Umsækjandi skal gefa greinargóða lýsingu á námi sínu eða fyrirhuguðu verkefni. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2018. Sótt er um á mínum síðum á hafnarfjordur.is.
Í erfðaskrá frá 1960 arfleiddu hjónin Friðrik Bjarnason og Guðlaug Pétursdóttir Hafnarfjarðarbæ af miklum hluta eigna sinna og mæltu svo fyrir að bækur og munir skyldu varðveittar í bókasafninu og að stofnaður væri sjóður til að „efla tónlistarlíf í Hafnarfirði með þeim hætti er best þykir fara hverju sinni, þó einkum til eflingar sönglífs í bænum“, og „styrkja nemendur til tónlistarnáms og fræðimenn í tónlist“. Styrkveiting fer fram á afmælisdegi Friðriks 27. nóvember.