Styrkir til meistaranema
Samband íslenskra sveitarfélaga veitir nú í annað sinn allt að þremur meistaranemum styrki til að vinna lokaverkefni á sviði sveitarstjórnarmála sem tengjast stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Til úthlutunar er að þessu sinni allt að 750.000 kr. og stefnt er að því að veita þrjá styrki.
Málefni sveitarfélaga –
styrkir til meistaranema
Samband íslenskra
sveitarfélaga veitir nú í annað sinn allt að þremur meistaranemum
styrki til að vinna lokaverkefni
á sviði sveitarstjórnarmála sem tengjast
stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Til úthlutunar er að þessu sinni allt að
750.000 kr. og stefnt er að því að veita þrjá styrki.
Rafrænt umsóknarform,
verklagsreglur vegna úthlutunar, stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga
2014-2018, áhersluþættir við styrkveitingar til meistaranema 2017 og
Starfsáætlun sambandsins árið 2017 er að finna á vef sambandsins, www.samband.is.
Í umsókn skal meðal annars
koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður
við stefnumörkun sambandsins. Heimilt er að tilgreina verkefni þó svo að þau
séu ekki í skjali yfir áhersluþætti við styrkveitingar 2017 en verkefnið verður
þó að eiga góða skírskotun til stefnumörkunarinnar.
Nánari
upplýsingar veitir Valur Rafn Halldórsson, valur@samband.is | 515-4915
Umsóknarfrestur
er til miðnættis 1. febrúar 2017.