Styrkir vegna náms og tækjakaupa fatlaðs fólks

Fréttir

Rafræn umsókn. Umsóknarfrestur er 30. september

Styrkir vegna náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.

Hafnarfjarðarbær vekur athygli á möguleika fatlaðs fólks sem þarfnast sértæks stuðnings vegna fötlunar sinnar til að sækja um styrk skv. 25. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Styrkurinn er ætlaður til að auðvelda fötluðu fólki að verða sér úti um þekkingu og reynslu til þess að auka möguleika þess til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Forsendur fyrir styrknum er að eiga lögheimili í Hafnarfirði, hafa náð 18 ára aldri og vera með varanlegt örorkumat.

Sveitafélögum er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar (námskeiðs- og skólagjalda og námsgagna) sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga. Einnig er heimilt að veita styrk til verkfæra- og tækjakaupa eða annarrar fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auka möguleika fatlaðs fólks til þess að vera virkir í samfélaginu.

Opið er fyrir umsóknir frá 1. september til og með 30. september 2020

Réttur til úthlutunar fyrnist sé ekki sótt um styrk innan 12 mánaða frá því að til útgjalda var stofnað. Miðað er við dagsetningu frumrits greiðslukvittunar. Umsóknarfrestur vegna styrkveitinga í október 2021 er til og með 30. september 2021.

Sótt er um styrk í gegnum Mínar síður 

Ábendingagátt