Suðurhöfn í Hafnarfirði / Óseyrarbraut 25

Fréttir

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 6. mars 2019 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Óseyrarbraut 25 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar í Hafnarfirði.

Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar í Hafnarfirði / Óseyrarbraut 25

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 6. mars 2019 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Óseyrarbraut 25 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar í Hafnarfirði.

Deiliskipulagsbreytingin felur í sér stækkun byggingarreits, nýtingarhlutfall lóðarinnar verður Nh=0,4.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2 frá 8. maí til 18. júní 2019. Hér er hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna

Suðurhöfn – breyting á deiliskipulagi – Óseyrarbraut 25 

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 18. júní 2019.

Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðar.

Skipulagsfulltrúi.

Ábendingagátt