Suðurnesjalína 2 – frummatsskýrsla í kynningu

Fréttir

Landsnet hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurnesjalínu 2. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 5. júní 2019 til 18. júlí 2019.

Landsnet hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurnesjalínu 2. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 5. júní 2019 til 18. júlí 2019 á Bókasafni Hafnarfjarðar, skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér

Frestur til að senda inn athugasemdir er til 18. júlí 2019

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 18. júlí 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is  

Vakin er athygli á opnu húsi sem verður sem hér segir:

  • 11. júní kl. 17 til 19 í Álfabergi, Sveitarfélaginu Vogum
  • 12. júní kl. 17 til 19 að Ásvöllum í Hafnarfirði
Ábendingagátt