Sumargöngur í Hafnarfirði

Fréttir

Næsta ganga er fimmtudagskvöldið 30.júlí

Í sumar er boðið uppá kvöldgöngur í Hafnarfirði með leiðsögn alla fimmtudaga kl. 20. Miðað er við að þær taki um klukkustund og séu við allra hæfi. Þátttaka er ókeypis.

Fimmtudagskvöldið 30.júlí kl 20.00 mun Valgerður Sigurðardóttir sagnfræðingur segja frá þáttöku kvenna í uppbyggingu umönnunar og heilsugæslu. Gengið verður frá Pakkhúsi Hafnarfjarðar. 

Sumargöngur í Hafnarfirði eru samstarf Hafnarborgar, Byggðarsafns, Bókasafns og skrifstofu menningarmála í Hafnarfirði. Göngurnar njóta stuðnings frá Hafnarfjarðarhöfn.

Viðburðinn er einnig að finna á Facebook

Ábendingagátt