Sumarhátíð Vinnuskólans

Fréttir

Sumarhátíð Vinnuskóla Hafnarfjarðar fór fram fimmtudaginn 23. júlí í blíðskaparveðri þar sem voru saman komin á fjórða hundrað ungmenni á Víðistaðatúni.

Sumarhátíð Vinnuskóla
Hafnarfjarðar fór fram fimmtudaginn 23. júlí í blíðskaparveðri þar sem voru
saman komin á fjórða hundrað ungmenni á Víðistaðatúni.

Í Vinnuskólanum í ár störfuðu
um 600 ungmenni í 8. til 10. bekk í almennum hópum en hlutverk þeirra er að sjá
um beða- og ruslahreinsun ásamt almennri garðvinnu. Gert var út frá átta
grunnskólum í bænum þar sem þau hreinsa til í sínu skólahverfi.

Sumarhátíðin er hugsuð sem
uppskeruhátíð fyrir krakkana og þakklæti til þeirra fyrir að hafa hreinsað til
í bænum í sumar.

Víðistaðatún iðaði af lífi
þennan fallega sumardag eins og myndirnar, sem Andri Þór Unnarsson tók, bera með sér. Krakkarnir léku sér á
bátum á tjörninni, farið var í ýmsa leiki eins og kubb, tennis, badminton og
boltaleiki. Í grillhúsinu var boðið upp á pylsur og svaladrykki.

Á sama tíma var
jafningjafræðsla Vinnuskólans með fatamarkað þar sem hægt var að kaupa notaðar
flíkur frá 200 – 1000 kr. og rann ágóðinn, 12.500 kr, til UNICEF.

Ábendingagátt