Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sumarlesturinn er fyrir alla og eru foreldrar og forráðamenn sérstaklega hvattir til þess að taka þátt með börnunum sínum. Bókasafn Hafnarfjarðar vill með sumarlestri hjálpa börnum og foreldrum að viðhalda lestrarfærni barna yfir sumartímann.
Nú blasa sumarfrí í grunnskólum Hafnarfjarðar við og þá á lesturinn oft til að gleymast enda margt skemmtilegt um að vera. Rannsóknir sýna að lestrarfærni barna getur tapast yfir sumarmánuðina og því er mikilvægt að viðhalda henni í sumarfríinu. Bókasafn Hafnarfjarðar vill hjálpa foreldrum við það með því að bjóða upp á sumarlestur líkt og undanfarin ár og hefst hann þann 3. júní og stendur til 16. ágúst.
Sumarlesturinn er fyrir öll börn og eru foreldrar og forráðamenn sérstaklega hvattir til þess að taka þátt með börnum sem ekki eru orðin læs með því að lesa fyrir þau. Einnig eru foreldrar auðvitað hvattir til þess að lesa sjálfir sér til skemmtunar og koma með börnum sínum á bókasafnið í leit að góðum bókum. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sumarlestrinum geta komið á bókasafnið og skráð sig til leiks. Þar fá allir lestrardagbók sem þeir skila svo til bókasafnsins að sumarlestrinum loknum. Allir sem skila inn lestrardagbók fá glaðning.
Einnig er í boði að fylla út bókaumsögn fyrir hverja lesna bók og skila í póstkassa á barna- og unglingadeild. Á hverjum föstudegi er svo lestrarhestur vikunnar dreginn út og hlýtur hann verðlaun. Þann 7. september verður svo haldin uppskeruhátíð þar sem góðum lestrarárangri sumarsins verður fagnað með grilluðum pylsum, leikjum og skemmtun. Dregið verður úr öllum lestrardagbókum sem hafa borist og verðlaun veitt.
Gleðilegt lestrarsumar!
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…