Sundhöllin er elsta laug Hafnarfjarðar og er þekkt fyrir sitt rólega andrúmsloft.
Laugin og aðstaðan
Í Sundhöllinni er innilaug sem er 25 metrar að lengd, 8,7 metrar í breidd og í dýpri enda laugarinnar er hún 3,2 metra djúp. Tveir rúmgóðir heitir pottar eru í afgirtum garði við bygginguna með öflugum nuddtækjum sem njóta mikilla vinsælda. Sánaklefar eru í sérstökum karla- og kvennaklefum.
Laugin er mikið notuð af eldra fólki og íbúum í nágrenni laugarinnar. Sundfélag Hafnarfjarðar er með hluta af sínum æfingatímum í lauginni og nemendur í Víðistaðaskóla og Engidalsskóla sækja þangað í skólasund.
Elsta sundlaug Hafnarfjarðar
Sundhöll Hafnarfjarðar er elsta sundlaugin í Hafnarfirði. Í fyrstu var aðeins um útilaug að ræða við Krosseyrarmalir sem var tekin í notkun árið 1943. Það var síðan árið 1953 sem Sundhöll Hafnarfjarðar var tekin í notkun eftir að byggt hafði verið yfir útilaugina.
Opnunartímar á almennum frídögum
| Frídagar | Opnunartímar |
|---|---|
| Skírdagur | Lokað |
| Föstudagurinn langi | Lokað |
| Páskadagur | Lokað |
| Annar í páskum | Lokað |
| Sumardagurinn fyrsti | Lokað |
| Verkalýðsdagurinn | Lokað |
| Uppstigningardagur | Lokað |
| Hvítasunnudagur | Lokað |
| Annar í hvítasunnu | Lokað |
| Þjóðhátíðardagurinn | 09:00-16:00 |
| Frídagur verslunarmanna | Lokað |
| Þorláksmessa | 06:30-17:00 |
| Aðfangadagur jóla | 06:30-11:00 |
| Jóladagur | Lokað |
| Annar í jólum | Lokað |
| Gamlársdagur | 06:30-11:00 |
| Nýársdagur | Lokað |
Sundlaugar
| Verðskrá | kr. |
|---|---|
| Eitt skipti barna (0–17 ára) | Frítt |
| Eitt skipti eldra fólks (67 ára og eldri) | Frítt |
| Eitt skipti fullorðinna (18–66 ára) | 1.250 kr. |
| Leiga á sundfötum eða handklæði | 940 kr. |
| Leiga á sundfötum og handklæði | 1.450 kr. |
| Punktakort (gilda í 2 ár) | |
| 10 punkta sundkort fullorðinna | 5.200 kr. |
| 30 punkta sundkort fullorðinna | 14.000 kr. |
| 6 mánaða kort | |
| Sundkort fullorðinna | 20.500 kr. |
| Árskort | |
| Árskort fullorðinna | 36.400 kr. |
| Leiga | |
| Leiga á laug til hópa pr. klukkustund m.v. einn starfsmann. Lágmark 4 klukkustundir | 9.000 kr. |