Sundlaugar í Hafnarfirði verða opnar í samkomubanni

Fréttir

Sundlaugar í Hafnarfirði verða opnar í samkomubanni. Gufuböð verða lokuð sem og gufubaðsklefar en rennibrautir og pottar verða opnir og er þeim tilmælum beint til gesta að virða tveggja metra regluna sem nú er í gildi. Farið verður að tilmælum almannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna. Þá verður takmörkuð nýtingin á handklæðarekkum og sömuleiðis nýting á sturtum.

Sundlaugar í Hafnarfirði
verða opnar í samkomubanni. Gufuböð verða lokuð sem og gufubaðsklefar en
rennibrautir og pottar verða opnir og er þeim tilmælum beint til gesta að virða tveggja metra regluna sem nú er í gildi. Farið verður að tilmælum almannavarna um
fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna.
Þá verður takmörkuð nýtingin á handklæðarekkum og sömuleiðis nýting á sturtum.
Búast má við fjölgun heimsókna frá börnum vegna skerðingar á skóla og
frístundastarfi. Almennar sundæfingar barna falla niður til 23. mars samanber
tilmæli ÍSÍ.

Aukin þrif og tveggja metra regla 

Aukin þrif verða í
sundlaugunum, starfsfólk lauganna mun spritta og þrífa snertifleti reglulega,
bekki, borð, skápa, lykla, sápuskammtara, salerni og þess háttar. Þá verða
gestir beðnir um að passa upp á fjarlægðartilmæli sóttvarnarlæknis um tveggja
metra bil sín á milli í búningsklefum, sturtum og pottum. Ákvarðanir
varðandi opnun sundlauganna verða endurskoðaðar eftir því sem fram líður og
metið hvernig til hefur tekist út frá sóttvarnarsjónarmiðum.  

Sjá opnunartíma sundlauga í Hafnarfirði

Ábendingagátt