Syndum – landsátak í sundi í nóvember

Fréttir

Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem er öllum landsmönnum opið. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nýta sundið og þær flottu sundlaugar sem er að finna um land allt.
Átakið var formlega sett á laggirnar fyrir tveimur árum og hefur þátttakan verið gríðarlega góð. Á síðasta ári syntu landsmenn 10,2 hringi í kringum landið eða 13.550 km í 71 sundlaug . Það væri gaman að sjá viðlíka þátttöku í ár eða jafnvel enn meiri.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóvember 2023

Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem er öllum landsmönnum opið. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nýta sundið og þær flottu sundlaugar sem er að finna um land allt.
Átakið var formlega sett á laggirnar fyrir tveimur árum og hefur þátttakan verið gríðarlega góð. Á síðasta ári syntu landsmenn 10,2 hringi í kringum landið eða 13.550 km í 71 sundlaug . Það væri gaman að sjá viðlíka þátttöku í ár eða jafnvel enn meiri.

Syndum – Landsátak í sundi, er framhald af Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð til að styrkja hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Syndum saman í kringum Ísland – skráning virk frá og með 1. nóvember

Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is. Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Þeir sem skrá sig og taka þátt eiga möguleika á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga. Skráning var gerð virk þann 1. nóvember.

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Lindu Laufdal, starfsmann ÍSÍ í síma: 514-4016 eða á netfangið syndum@isi.is.

Ábendingagátt