Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Nýtt Tæknifræðisetur Háskóla Íslands var formlega opnað við hátíðlega athöfn í Menntasetrinu við Lækinn í Hafnarfirði í gær. Með flutningi tæknifræðinámsins í Menntasetrið hyggst Háskóli Íslands efla enn frekar umgjörð þess og leggja sterkan grunn að styttra fagháskólanámi í tæknigreinum.
Nýtt Tæknifræðisetur Háskóla Íslands var formlega opnað við hátíðlega athöfn í Menntasetrinu við Lækinn í Hafnarfirði í gær um leið og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, undirrituðu samning um afnot Tæknifræðisetursins af húsnæði Menntasetursins. Með flutningi tæknifræðinámsins í Menntasetrið hyggst Háskóli Íslands efla enn frekar umgjörð þess og leggja sterkan grunn að styttra fagháskólanámi í tæknigreinum.
Tæknifræði til BS-náms hefur undanfarin níu ár farið fram á vettvangi Keilis að Ásbrú í Reykjanesbæ en nemendur formlega útskrifast frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Þar sem starfsemi Keilis að Ásbrú hefur aukist mikið, eflst og þróast og til þess að svara ákalli bæði atvinnulífs og nemenda var ákveðið að ráðast í breytingar á fyrirkomulagi tæknifræðinámsins og finna því stað nær höfuðborgarsvæðinu. Samningar náðust við Hafnarfjarðarbæ fyrr á árinu um aðstöðu fyrir námið í Menntasetrinu við Lækinn og hófst kennsla þar í haust. Þar stunda nú 43 nemendur nám í greininni.
Flutningurinn er afar mikilvægur fyrir eflingu umgjarðar og aðstöðu tæknifræðináms en rekstur þess mun alfarið flytjast til Háskóla Íslands um áramót. Karl Sölvi Guðmundsson, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, verður forstöðumaður Tæknifræðisetursins en hann hefur unnið ötullega að flutningi þess í Hafnarfjörð ásamt starfsfólki einingarinnar hjá Keili sem kemur nú formlega til starfa hjá Háskóla Íslands. Flutningur tæknifræðinámsins er ekki síður mikilvægur þáttur í undirbúningi nýs fagháskólanáms í tæknigreinum sem veitir aðgang að öðru háskólanámi. Þegar er byrjað að bjóða upp á diplómanám í tæknigreinum á háskólastigi innan Tæknisetursins og er gert ráð fyrir að fyrstu nemendurnir brautskráist úr því námi að ári liðnu. Diplómagráðan veitir svo aðgang að öðru námi á háskólastigi, t.d. BS-námi í tæknifræði eða verkfræði.
Við opnunarathöfn Tæknifræðiseturs Háskóla Íslands í Menntasetrinu við Lækinn í gær undirrituðu Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, samning um afnot Tæknifræðisetursins af húsnæði Menntasetursins við Lækinn en starfsemi fyrrnefnda setursins fer fram á nokkrum stöðum í húsnæði Menntasetursins.
„Atvinnulífið á Íslandi kallar stöðugt eftir fleiri tæknimenntuðum einstaklingum um leið og gerð er krafa um fjölbreyttara námsframboð í tæknigreinum. Tæknifræðisetur Háskóla Íslands svarar þessu kalli með þróun núverandi náms í tæknifræði auk þess að bjóða upp á nýtt fagháskólanám í tæknigreinum. Það er vel við hæfi að finna þessari mikilvægu háskólagrein, tæknifræðinni, stað í þessu rótgróna skólahúsi,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, við þetta tækifæri.
„Við fögnum komu Tæknifræðiseturs Háskóla Íslands til Hafnarfjarðarbæjar og hlökkum til að þróa og feta veginn með háskólanum. Hafnarfjarðarbær er bær öflugra fyrirtækja sem mörg hver starfa í tæknigeiranum og því mikið gleðiefni að geta boðið upp á tækninám á háskólastigi innan bæjarmarkanna. Þegar er mikið líf í Menntasetrinu og það sannarlega að standa undir nafni sem lifandi skólasamfélag. Við erum þess fullviss að þessi starfsemi muni tóna vel saman við það fjölbreytta nám sem fyrir er í húsinu og styrkja stoðir Menntasetursins við Lækinn sem hús sköpunar, fræða og tækni,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, við undirritun samnings.
Nánari upplýsingar um Tæknifræðisetrið veitir Karl Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður í síma 821-6466.
Yfir 4.000 gestir mættu á búninga- og leikjasamkomuna Heimar og Himingeimar í Hafnarfirði um helgina. Bókasafn bæjarins stóð að samkomunni…
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2024. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við…
Hittu hamingjuna í Hafnarfirði í september. Fjöldi viðburða sem efla andann, bæta líðan okkar og hvetja okkur til að auka…
Búist er við fjölda gesta á búninga- og leikjasamkomunni Heimar og Himingeimar í Hafnarfirði um helgina. Hátíðin hefst kl. 17.…
Hafnarfjarðarbær hefur gengið frá kaupum á nýju húsnæði fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar í verslunarmiðstöðinni Firði. Nútímavæða á 102 ára gamla bókasafn…
Hafnarfjarðarbær vekur athygli á möguleika fatlaðs fólks sem þarfnast sértæks stuðnings vegna fötlunar sinnar til að sækja um styrki skv.…
Það var sannkallað stuð fyrir alla fjölskylduna í brakandi blíðu á glæsilegri hátíð í Hellisgerði í gær. Þar mátti heyra…
Búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar verður haldin á Bókasafni Hafnarfjarðar 30. ágúst til 1. september. Þar munu ævintýrin gerast.
Báðir álfar en þó ekki bræður, Íþróttaálfurinn og Benedikt búálfur, verða meðal þeirra sem verða á kreiki í Hellisgerði sunnudaginn…
Nýtt skólaár innan grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar hefst á morgun og munu um 4.100 börn og ungmenni setjast á skólabekk þetta haustið.…