Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Jólin voru kvödd formlega í jólabænum Hafnarfirði á fjölmennri og vel heppnaðri Þrettándahátíð á Ásvöllum sem haldin var í samstarfi við Knattspyrnufélagið Hauka. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar vill nota tækifærið og þakka af heilum hug og öllu hjarta fyrir hlýlega og góða samveru á aðventunni og yfir jólahátíðina með þökkum fyrir virka þátttöku, einstakan jólaanda og almenna jólagleði.
Jólaævintýrið í jólabænum Hafnarfirði hófst með Jólaþorpinu í Hafnarfirði árið 2003 og verður Jólaþorpið því 20 ára á þessu ári. Jólaþorpið hefur með árunum stimplað sig inn sem landsþekktur og vinsæll söluvettvangur fyrir ýmis konar gjafavöru, gómsætt ljúfmeti, handverk og hönnun og í ár komust færri söluaðilar að en vildu í jólahúsin. Opnunartíminn í Jólaþorpinu var lengdur í ár, fimmtu opnunarhelginni bætt við auk föstudagsopnunar. Jólaþorpið og framkvæmd þess er í stanslausri þróun og alltaf eitthvað nýtt, öðruvísi og spennandi að gerast þar. Þúsundir gesta sóttu Jólaþorpið heim í ár sem verður að teljast stórkostlegt.
Frá 10. nóvember – 30. desember var Hjartasvellið opið í samstarfi Hafnarfjarðarbæjar og Bæjarbíó. Hjartasvellið er 200 fermetra skautasvell fyrir ungt fólk á öllum aldri sem fyrst var opnað fyrst á aðventunni 2021 við mikinn fögnuð. Staðsetningu svellsins var breytt í ár og var Hjartasvellið staðsett fyrir framan Bæjarbíó og Bókasafn Hafnarfjarðar. Ný staðsetning tengir skemmtilega saman Jólaþorpið í miðbænum og ljósadýrðina í Hellisgerði. Fjölmargir gestir komu og nutu samveru með vinum og ættingjum á skautum í hjarta Hafnarfjarðar í ár eða um 4.000 manns.
Á Þorláksmessu voru veittar viðurkenningar fyrir best skreyttu húsin, best skreyttu fyrirtækin og best skreyttu götuna í Hafnarfirði sem geymir reyndar smábáta en ekki hús. Hafnfirðingar og aðrir áhugasamir voru í upphafi desembermánaðar hvattir til að setja upp stóru jólagleraugun og senda ábendingu um þá sem þóttu bera af í jólaskreytingum þetta árið. Átta sérbýli fengu viðurkenningu í ár fyrir metnað og áræðni og smekklegar og fallegar skreytingar sem ýta undir fegurð húsanna sjálfra og gefa götumyndunum fallegan og jólalegan blæ. Litla hönnunarbúðin fékk viðurkenningu fyrir fallega jólaskreytingu fyrir framan verslun í miðbæ Hafnarfjarðar, Fjörukráin fyrir jólalega og skrautlega skreytingu sem fyllir götuna sannri jólagleði og Flensborgarhöfn fyrir fallega skreytta báta sem gefa mjög jólalega ásýnd á bæði höfnina og Hamarinn.
Jólablað Hafnarfjarðar hefur nú komið út í fjögur ár og er gefið út í sömu viku og Jólaþorpið opnar ár hvert. Jólablaðið hefur þann eina tilgang að kynna jólabæinn Hafnarfjörð fyrir öllum áhugasömum, gestum og gangandi, og varpa ljósi á hlýleikann og fjölbreytileikann sem býr með fólkinu og fyrirtækjunum í Hafnarfirði. Þessi útgáfa hefur gefist vel og er aðgengileg á rafrænu formi allt árið um kring. Vefútgáfa jólablaðsins 2022
Ljósadýrðin í Hellisgerði mun lifa áfram fram í febrúar. Þúsundir íbúa og vina Hafnarfjarðar nutu þess að baða sig í ljósum í skrúðgarði Hafnfirðinga þessa jólahátíðina líkt og síðustu tvö árin. Þúsundir gesta lögðu leið sína um garðinn þessi jólin og nutu útivistar og upplifunar með fjölskyldu og vinum. Kaffihúsið í Hellisgerði, Litla Álfabúðin, var opin í takti við opnunartíma Jólaþorpsins og þar hægt að kaupa ilmandi kaffi og kakó, margar tegundir af spennandi tei, kökur og bakkelsi. Ljósadýrðin í Hellisgerði mun lifa áfram fram yfir Vetrarhátíð sem haldin verður dagana 2.–5. febrúar og fer m.a. fram í öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist með yfir 150 viðburðum á höfuðborgarsvæðinu í heild þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Meira um það síðar!
Sigríður Guðrún Jónsdóttir, dagmamma til 51 árs, stóð á starfsdegi dagforeldra með fangið fullt af blómum eftir ævistarfið sem litaði…
Hjarta Hafnarfjarðar skartar bleikum ljósum í tilefni þess að Bleikur október hefur hafið innreið sína. Hjartað var ekki aðeins skreytt…
Fundarröðin Við erum þorpið hefst 8. október í Bæjarbíói. Hún miðar að því að bregðast við stöðunni í samfélaginu og…
Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í innleiðingu á hugmyndafræðinni um opinn leikskóla á Íslandi. Félagasamtökin Memmm Play hafa starfrækt slíkan leikskóla…
Fánadagurinn var fyrst haldinn árið 2020 og hafa vinsældir framtaksins farið ört vaxandi. Hundruð fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga…
Austurgata 12, Venusarhús, er handhafi Snyrtileikans 2024. Þá var Rosa K. Moeller sæmd heiðursverðlaunum í þágu samfélagsins. Tíu íbúðahús fengu…
Öllum gefst færi á góðum félagsskap og að styrkja gott málefni á Lífskraftsdeginum sem haldinn verður þann 28. september næstkomandi…
„Þátttaka í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi er verndandi þáttur í lífi barna og ungmenna,“ segir fagstjóri forvarna- og frístundastarfs hjá…
Hamingjuna hefur verið víða að finna í Hafnarfirði í september. Fjölmargir viðburðir hafa liðið hjá en enn má hitta hamingjuna…
Andri Iceland stýrir hamingjustund í Bæjarbíói þriðjudaginn 24. september kl. 20. Fyrirlesturinn hans kallast: Hugsaðu um heilsuna. Lærðu að vera…