Taktu þátt og vertu fyrirmynd í Lífshlaupinu 2026

Fréttir

Lífshlaupið, sem hefst 1. febrúar, er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að sporna við kyrrsetu og hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi.

Lífshlaupið hefst 1. febrúar 2026

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að sporna við kyrrsetu og hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi.

Stuðst er við ráðleggingar embættis landlæknis um hreyfingu sem segir að börn og unglingar þurfi að hreyfa sig minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir þurfi að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 21,4 mínútur daglega.

Í Lífshlaupinu er miðað við 30 mínútur á dag fyrir 16 ára og eldri. Reglubundin hreyfing stuðlar að bættum svefni, bættum lífsgæðum, dregur úr líkum á ýmsum sjúkdómum og styrkir hjarta- og æðakerfið.

Skráning hófst 16. janúar og stendur yfir. Keppnin er frá 1. – 28. febrúar.

Lífshlaupið skiptist í þessa keppnisflokka:

  • Vinnustaðakeppni frá 1. – 28. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (fjórar vikur)
  • Framhaldsskólakeppni frá 1. – 28. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • Grunnskólakeppni frá 1. – 28. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • Hreystihópar 60+ frá 1. – 28. febrúar, (fjórar vikur)
    Lífshlaupsvefinn má nota til að halda utan um alla hreyfingu, notanda að kostnaðarlausu

Með Lífshlaups-appinu er einfalt að skrá sína hreyfingu á meðan á Lífshlaupinu stendur. Í smáforritinu er hægt að skrá og sjá alla hreyfingu viku aftur í tímann. Þar er einnig hægt að lesa hreyfingu beint úr Strava. Það er þó rétt að benda á að það þarf að fara á vefsíðu Lífshlaupsins til þess að stofna aðgang og til þess að stofna lið/ganga í lið, en eftir að það er búið er hægt að skrá sig inn í gegnum smáforritið og skrá alla hreyfingu þar. Smáforritið finnst bæði í App Store (iOS) og í Play Store (Android) undir heitinu „Lífshlaupið“.

Einnig er hægt að nálgast það með því að smella hér ef með Iphone og hér ef þú með Android.

Skráningarferlið er einfalt og fínar leiðbeiningar má finna r. Leiðbeiningar á ensku eru hér

Heppnir þátttakendur dregnir út alla virka daga

ÍSÍ og samstarfsaðilar standa fyrir skráningar- og myndaleik á meðan á keppninni stendur. Með því að skrá þína hreyfingu undir vinnustaðinn, hreystihóp 60+ eða skólann, ert þú kominn í pott og gætir unnið glæsilega vinninga.

Fylgstu með, forsvarsmenn Lífshlaupsins draga út heppna þátttakendur alla virka daga í útvarpsþættinum Morgunverkin á Rás2. Nöfn vinningshafa verða einnig birt á heimasíðu Lífshlaupsins.

Taktu þátt og vertu fyrirmynd í hreyfingu fyrir fólkið í kringum þig.

Nánar á www.lifshlaupid.is

Ábendingagátt