Þakkarræður og þúsund gestir við vígslu knatthúss Hauka

Fréttir

Fjölmenni var við vígslu knatthús Hauka, þessa glæsilega íþróttamannvirkis sem gjörbreytir leiknum á Ásvöllum. „Loksins, loksins,“ sagði formaður Hauka. „Loksins, loksins, loksins,“ sagði formaður bæjarráðs. Gleðin yfir húsinu er mikil.

Knatthús Hauka vígt

„Loksins, loksins eru orðin sem koma upp í hugann á þessum merkisdegi þegar við fögnum því að byggingu eins glæsilegasta íþróttamannvirkis á Íslandi er senn lokið,“ sagði Magnús Gunnarsson, formaður Hauka á föstudag, þegar nýtt knatthús félagsins var vígt. Dagurinn var stór í huga Haukamanna. Um 1000 manns mættu á vígsluathöfnina. Gleðin réði ríkjum.

Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs, bætti um betur og sagði: „Loksins, loksins, loksins.“ Húsið væri stórkostlegt.

Magnús nefndi að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefði „sýnt djörfung og framsýni í að byggja glæsilegt íþróttamannvirki sem hún felur nú knattspyrnufélaginu Haukum til umsjónar og reksturs um ókomin ár,“ sagði Magnús. Hafnfirðingar hafi sameinast og byggt upp íþróttabæinn Hafnarfjörð. Öll aðstaða gjörbreytist með knatthúsinu á Ásvöllum.

Spila

„Allra besta aðstaða landsins“

Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í Ástjarnarkirkju vígði húsið. „Til hamingju með þetta stórkostlega fótboltahús og þessa einstöku aðstöðu sem við höfum fengið hér í dag,“ sagði hann.

„Þetta hús er ekki bara nýtt fótboltahús heldur tákn um ótal tækifæri og vonandi tákn um metnaðarfulla framtíðarsýn,“ sagði hann.

„Við stöndum inni í allra bestu fótboltastöðu landsins í hjarta eins fjölmennasta og barnmesta hverfi landsins, í hverfi þar sem aragrúi barna dreymir um að spila fótbolta, læra, vaxa og sigra. Hvað þýðir það? Það þýðir að möguleikarnir eru óendanlegir. Það þýðir að Haukar eiga að stefna á toppinn og verða stórveldi í íslenskum fótbolta,“ sagði Arnór áður en hann vígði húsið með Guðs orðum.

Skiki varð að íþróttamannvirki

Magnús lýsti  í ræðu sinni hvernig samkomulag um að Haukar létu bæinn hafa skika til íbúðabygginga hafi haft úrslitaáhrif. Fjármunirnir hafi rennið til húsbyggingarinnar. 1.272 milljónir hafi fengist fyrir skikann sem létti á fjármögnun verkefnisins. Íþróttasvæði Hauka væri nú eitt það besta á landinu. Hann þakkaði bæjarstjórn og starfsfólki fyrir og sérstaklega Rósu fyrrum bæjarstjóra fyrir hennar þátt að drífa verkefnið áfram með sínu fólki í bæjarstjórn.

Rósa sagði í sinni ræðu að Haukar hefðu sýnt stórhug með að afsala sér hluta lóðarinnar svo fjármagna mætti knatthúsið. „Þá fór allt af stað,“ sagði Rósa. Hún sagði starfið ekki aðeins ganga út á sigra heldur ekki síður félagsstarfið.

„Að vera saman. Og það er einmitt það sem Haukar eru sterkir í. Haukar eru svo samheldnir og fyrir það vil ég þakka öllum þeim sem hafa komið hafa að málum hér í langan tíma og nú síðastliðna áratugi Magnúsi Gunnarssyni sem fer þar í farabroddi. Hér eru allir velkomnir, hér eru allir vinir. Þetta hús er dásamlegt.“ Hafnfirðingar geti notið þess með einum eða öðrum hætti.

„Nú er svo komið að aðstaðan hér á Ásvöllum til íþrótta- og heilsuiðkunar er með því besta sem gerist á landinu.“ Fólk muni vegna aðstöðunnar vilja búa þar. Hún hlakki til að sjá húsið iða af lífi um ókomna tíð.

Stoltur af íþróttabænum

Valdimar Víðisson bæjarstjóri tók svo við lyklunum úr hendi xxx frá ÍAV eftir ávarp hans. ÍAV væri stolt af verkinu. Hann sagði frábært teymi hafa haldið utan um bygginguna.

Valdimar óskaði Haukum og íbúum til hamingju. „Hafnarfjörður er svo sannarlega íþróttabær sem við getum verið stolt af.“ Tímamótin væri merk. Húsið myndi gjörbylta aðstöðunni í bænum.

Magnús færði öllum þeim sem komu að byggingu hússins þakkir: „Framtíðin er björt.“

Já, framtíðin er svo sannarlega björt.

Ábendingagátt