Þarfaþing hlýtur sitt fyrsta Svansleyfi fyrir nýbyggingu að Áshamri 50
Langflestar Svansvottaðar íbúðir hér á landi eru staðsettar í Hafnarfirði, eða um 57% þeirra. Verktakinn Þarfaþing ehf. hefur nú fengið sitt fyrsta Svansleyfi fyrir nýbyggingarverkefni í Hafnarfirðinum.
Umhverfisvænt í Hafnarfirði
Langflestar Svansvottaðar íbúðir hér á landi eru staðsettar í Hafnarfirði, eða um 57% þeirra. Þetta segir á vef Svansins, sem á dögunum veitti verktakanum Þarfaþing ehf. sitt fyrsta Svansleyfi fyrir nýbyggingarverkefni í Hafnarfirðinum.
Á vef Svansins segir að það hafi sýnt sig vera virkilega góðan hvata að sveitarfélagið hafi veitt afslætti af lóða- og gatnagerðargjöldum þegar kemur að umhverfisvottuðum byggingum.
Byggt eftir nýjasta Svans-staðlinum
Verktakinn Þarfaþing ehf. hefur nú hlotið sitt fyrsta Svansleyfi fyrir nýbyggingarverkefni í Hafnarfirðinum. Fyrirtækið hefur áður tekið þátt í Svansvottuðu verkefni sem aðalverktaki, en þetta er í fyrsta sinn sem það ber ábyrgð á verkinu í heild. Þetta kemur einnig fram á vef Svansins.
Þetta er aðeins í annað sinn hér á landi sem verkefni hlýtur Svansvottun samkvæmt nýbyggingarviðmiðunum, útgáfu 4 – en það er nýjasta útgáfa viðmiðanna. Hún felur í sér hertar og metnaðarfyllri kröfur til byggingarefna, orkunýtni, loftgæða og heildaráhrifa bygginga á umhverfið.
Tóku á sig ríkari kröfur
Á vef Svansins segir að Þarfaþing hafi verið með fyrstu fyrirtækjum til að sækja um í þessari útgáfu. Það hafi fyrirtækið gert þrátt fyrir að enn hafi staðið til boða að sækja um í útgáfu 3. Það sýni mikinn metnað, framsýni og hugsjón þegar kemur að umhverfismálum og gæðum bygginga.
„Þarfaþing sýnir með þessari ákvörðun að fyrirtækið lítur á sjálfbærni og gæði sem samofna þætti í allri sinni starfsemi,“ segir Bergþóra Góa Kvaran sérfræðingur hjá Svaninum á Íslandi. „Þetta er ekki aðeins umhverfisvænt skref, heldur einnig stefnumarkandi ákvörðun sem eykur faglegt forskot og dýrmæta reynslu innan fyrirtækisins.“
Gæði í Svansvottuðum íbúðum
- Svanurinn leggur mikla áherslu á gæði bygginga – ekki síst með tilliti til dagsbirtu og innivistar. Rannsóknir sýna að betri dagsbirta hefur jákvæð áhrif á líðan og heilsu íbúa, og hefur sú krafa, meðal annars, verið hert í útgáfu 4. Sjá nánar í fréttinni: Bætt dagsbirta í Svansvottuðum byggingum.
- Svansvottuðum íbúðum fer sífellt fjölgandi og er nú hægt að finna slíkar víðsvegar um landið en alls eru núna meira en 400 íbúðir Svanvottaðar. Þetta er því í fyrsta skipti sem að það er raunverulegur möguleiki fyrir kaupendur að velja sér umhverfisvottað húsnæði.
- Með þessu fyrsta Svansleyfi sínu staðfestir Þarfaþing að umhverfismál, gæði og fagmennska séu leiðarljós í allri starfsemi fyrirtækisins – og markar þetta án efa aðeins upphafið að fleiri grænum og gæðamiklum verkefnum á vegum þess.