Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Samningur um gerð læsissáttmála fyrir foreldra var undirritaður í dag í Áslandsskóla. Framlag ráðuneytis til samnings eru 14 milljónir króna.
Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson, og formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, Anna Margrét Sigurðardóttir, undirrituðu í dag samning um gerð læsissáttmála fyrir foreldra og kynningarefnis þar af lútandi. Áslandsskóli fékk þann heiður að hýsa undirritunina og stjórnaði Leifur S. Garðarsson skólastjóri athöfninni.
Þjóðarsáttmáli um læsi hefur nú verið undirritaður en þar gera sveitarfélög og mennta- og menningarmálaráðherra ásamt fulltrúum Heimilis og skóla með sér samning þar sem allir aðilar staðfesta sameiginlegan skilning á því að læsi sé nauðsynlegt til virkrar þátttöku í samfélaginu þannig að hver og einn geti nýtt hæfileika sína sjálfum sér og samfélaginu öllu til velferðar. Einnig samþykkja samningsaðilar að þeir muni vinna að því eftir fremsta megni að a.m.k. 90% nemenda í sveitarfélaginu geti lesið sér til gagns árið 2018. Í dag geta 79% barna á Íslandi lesið sér til gagns samkvæmt niðurstöðum PISA 2012. Áhersla er lögð á samvinnu við foreldra og foreldrafélög til að ná markmiðum samningsins.
Markmiðið er að gera foreldrum grein fyrir þeirri ábyrgð sem þeir bera, benda á góðar leiðir og hvað hægt er að gera í stöðunni. Einnig að höfða til samtakamáttar og samábyrgðar foreldra með því að hanna læsissáttmála sem svipar að upplagi til foreldrasáttmála Heimilis og skóla. Sáttmálinn er auk þess vel til þess fallinn að tengja betur saman kennara og foreldra.
Framlag ráðuneytisins til samnings þessa er 14 milljónir króna og miðast við verkáætlun sem Heimili og skóli hafa lagt fram og ráðuneytið samþykkt. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2016 til ársloka 2016.
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…