Leik- og boltavellir
Í Hafnarfirði er gaman að leika sér úti á fjölmörgum stöðum.
Leikvellir fyrir börn
Opnir leikvellir, boltavellir og ærslabelgir eru staðsettir víðsvegar í bænum. Á kortavefnum má finna staðsetningu allra leikvalla og ærslabelgja.
Leikvellir fyrir fullorðna
Á Víðistaðatúni er bæði tennisvöllur Hafnfirðinga og sex holu frisbígolfvöllur. Frítt er á vellina og ekki nauðsynlegt að bóka fyrirfram.
Upplýsingaskilti um leikreglur og skipulag frisbígolfvallarins er á túninu fyrir neðan Víðistaðakirkju.