Heimgreiðslur
Heimgreiðslur
Hafnarfjarðarbær greiðir mánaðarlega í ellefu mánuði á ári heimgreiðslur til foreldra og forráðamanna barna sem ekki eru í leikskóla eða hjá dagforeldri frá 12 mánaða aldri og þar til barn verður 30 mánaða. Greiðslur falla niður ef barn hefur nám í leikskóla eða fer til dagforeldris fyrir þann tíma. Ekki er greitt fyrir júlí. Mánaðarleg greiðsla miðast við almenna niðurgreiðslu hjá dagforeldrum fyrir 8 klst. vistun.
Skilyrði fyrir greiðslu eru eftirfarandi:
- Að foreldri / forráðamaður og barn eigi lögheimili í Hafnarfirði. Sé lögheimili flutt frá Hafnarfirði í umsóknarmánuði fellur réttur til heimgreiðslu niður.
- Barn sé orðið eða verði 12 mánaða í þeim mánuði sem sótt er um og ekki eldra en 30 mánaða. Hægt er að óska eftir heimgreiðslu vegna barna eldri en 30 mánaða á meðan beðið er eftir plássi í leikskóla í Hafnarfirði og ekki er verið að greiða fyrir pláss annarsstaðar.
- Að barn sé á biðlista eftir leikskólaplássi í Hafnarfirði.
- Að foreldrar/forráðamenn séu ekki að þiggja aðrar niðurgreiðslur vegna barnsins frá Hafnarfjarðarbæ.
Sækja skal um heimgreiðslur á Mínum síðum. Greitt er síðasta virkan dag hvers mánaðar og greiðist eftir á fyrir líðandi mánuð. Greitt er ellefu mánuði á ári, ekki er greitt heimgreiðslur fyrir júlí. Heimgreiðslur eru ekki afturvirkar.
Sækja þarf um heimgreiðslur árlega
- Sækja þarf um einu sinni á ári vegna hvers barns sem á rétt á heimgreiðslum.
- Umsókn þarf að berast fyrir 19. þess mánaðar sem óskað er eftir að heimgreiðslur hefjist.
- Umsókn er virk til 30.júni ár hvert svo lengi sem barn á rétt á heimgreiðslum.
- Endurnýja þarf umsókn árlega fyrir 19.ágúst.
- Ekki er greitt vegna júlí mánaðar