Tónlistarskólar

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar starfar samkvæmt námskrá sem gefin er út af Menntamálaráðuneytinu. Náminu er skipt í grunnnám, miðnám og framhaldsnám.

Tónlistarskólinn

Sækja um

Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er hægt er að læra á:

  • píanó
  • hljómborð
  • orgel
  • harmóniku
  • gítar
  • bassa
  • slagverk
  • öll helstu strengja-, tréblásturs- og málmblásturshljóðfæri

Í skólanum er einnig starfandi söngdeild.

Samhliða hljóðfæranámi læra nemendur tónfræði, tónheyrn, hljómfræði og tónlistarsögu. Áhersla er lögð á samspil og í skólanum starfar sinfóníuhljómsveit, strengjasveitir, tvær lúðrasveitir, stórsveit og margir minni samspilshópar.

Yngstu börnin

Í Tónlistarskólanum er forskóladeild fyrir börn á aldrinum 6–9 ára. Markmiðið er að búa nemendur undir hljóðfæranám með markvissri þjálfun í hryn-, nótnalestri og almennri tónfræði. Í kennslustundum er sungið, dansað og leikið á ýmis ásláttarhljóðfæri og kennt á blokkflautu.

Í skólanum er einnig kennt Suzuki-nám þar sem börn byrja 3–6 ára. Hver nemandi sækir 30 mínútna einkatíma einu sinni í viku og 60 mínútna hóptíma einu sinni í viku þar sem 5 nemendur spila saman.

Rytmísk deild

Tónkvísl er rytmískur deild innan Tónlistarskóla Hafnarfjarðar þar sem mikil áhersla er lögð á spuna og samspil. Auk þess að fá hljóðfæratíma sækja nemendur samspilstíma. Í Tónkvísl læra nemendur helst á rafgítar, rafbassa, hljómborð, djasspíanó, slagverk og einstök blásturshljóðfæri. 

Hafnarfjarðarbær niðurgreiðir tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum ef það nám er sérhæfðara en boðið er upp á í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Umsækjandi þarf að hafa staðist inntökuskilyrði í viðkomandi tónlistarskóla og geta framvísað staðfestingu þess.

Sótt er um niðurgreiðsluna á Mínum síðum.

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar

Gjaldskrá Verð
Forskóli 65.460 kr.
Suzuki fiðlunám 104.049 kr.
Grunn og miðnám
1/1 + ½ Hljóðfæranám (lært á 2 hljóðfæri) 189.798 kr.
1/1 Hljóðfæranám 132.910 kr.
½ Hljóðfæranám 83.467 kr.
Tónfræðigreinar grunn- og miðnám 18.263 kr.
Ungbarnakennsla (námskeið 6 skipti) 16.624 kr.
Framhaldsnám án undirleiks
1/1 hljóðfæranám 149.205 kr.
1/2 Hljóðfæranám 89.603 kr.
Tónfræðigreinar framhaldsnám 24.351 kr.
Framhaldsnám með undirleik
1/1 Hljóðfæranám 170.789 kr.
½ Hljóðfæranám 123.336 kr.
Söngnám Verð
1/1 Söngnám með heilum undirleik 208.736 kr.
½ Söngnám með heilum undirleik 121.346 kr.
1/1 Söngnám með hálfum undirleik 170.789 kr.
½ Söngnám með hálfum undirleik 102.407 kr.
1/1 Söngnám án undirleiks 132.910 kr
½ Söngnám án undirleiks 83.467 kr
Söngnámskeið til reynslu (3 mánuðir) 35.735 kr.
Hljóðfæraleiga 15.001 kr.
Seðilgjald vegna greiðsluseðla skjólagjalda skv. gjaldskrá 390 kr.
Systkinaafsláttur (fyrir tvö systkini í skólanum) 50%
Systkinaafsláttur, vegna systkina samtímis í skólanum Afsláttur
Fyrir annað systkini, afsláttur 50%
Fyrir þriðja systkini og fleiri, afsláttur 75%