Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í gær þjónustusamning Hafnarfjarðarbæjar við Framsýn-Skólafélag. Framsýn-Skólafélag hyggst hefja rekstur unglingaskólans Nú í Hafnarfirði haustið 2016 þar sem áhersla verður lögð á upplýsingatækni, heilsu og hreyfingu.
Þjónustusamningur vegna nýs grunnskóla í Hafnarfirði
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í gær tillögu fræðsluráðs um þjónustusamning Hafnarfjarðarbæjar við Framsýn-Skólafélag og þar með stofnun grunnskóla Framsýnar og framlög til hans. Framsýn-Skólafélag hyggst hefja rekstur unglingaskólans Nú í Hafnarfirði haustið 2016 þar sem áhersla verður lögð á upplýsingatækni, heilsu og hreyfingu.
Þjónustusamningur felur í sér að Hafnarfjarðarbær greiðir rekstrarframlag vegna allt að 45 nemenda úr Hafnarfirði til grunnskóla Framsýnar. Skólinn verður einnig opinn fyrir nemendur úr öðrum sveitarfélögum en bærinn greiðir ekki rekstrarframlag vegna þeirra. Menntamálastofnun hefur gefið út viðurkenningu á starfsemi skólans og mun hann, líkt og aðrir skólar, starfa í samræmi við gildandi grunnskólalög. Samkvæmt viðauka við fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar verður kostnaðarþáttum vegna skólans mætt með breytingum innan fjárhagsáætlunar. Rými innan fjárhagsáætlunar er til komið vegna minna fjárframlags en áætlanir gerðu ráð fyrir til Barnaskóla Hjallastefnunnar á yfirstandandi fjárhagsári, bæði vegna færri nemenda og vegna þess að miðstig skólans hættir. Rekstrarframlag Hafnarfjarðarbæjar nemur 75% af vegnu meðaltali heildarrekstrarkostnaðar á hvern nemanda allra grunnskóla sem reknir eru af sveitarfélögum í landinu samkvæmt árlegum útreikningum Hagstofu Íslands og í samræmi við lög. Innifalið í þeim kostnaði er húsnæðiskostnaður, stjórnun, kennsla, sérfræðiþjónusta og annar almennur rekstrarkostnaður vegna skólastarfs. Framlag Hafnarfjarðarbæjar miðast við fjölda nemenda í skólanum í hverjum mánuði fyrir sig, allt að 45 nemendum. Er þetta í takt við það framlag sem þegar er greitt í dag með hafnfirskum nemendum sem stunda nám í sjálfstætt reknum skólum. Skólinn er rekinn án hagnaðarsjónarmiða og mun sá rekstrarafgangur sem kann að koma til verða nýttur til að styrkja innviði hans í formi námsgagna og kennslubúnaðar. Skólinn hefur heimild til gjaldtöku af foreldrum eða forsjáraðilum barns fyrir þjónustu, svo sem skólagjöld og fæðisgjöld. Nýr skóli undirgengst sömu skilyrði og sama ytra mat og aðrir grunnskólar í Hafnarfirði.
Hér má sjá hvernær sundlaugarnar okkar, bókasafnið og Hafnarborg yfir hátíðarnar. Einnig finna upplýsingar um sorphirðu.
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…