Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þjónustusamningur út árið 2027 hefur verið undirritaður við Félag eldri borgara í Hafnarfirði. Félagið er framsýnt og var tilnefnt til verðlauna á UT-messunni.
„Hér er bara ungt eldra fólk,“ sagði Valgerður Sigurðardóttir, formaður Félags eldri borgara Hafnarfjarðar glettin þegar hún ritaði undir þjónustusamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ í gær um rekstur og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Hraunsels.
„Já, við erum að fara að skrifa hér undir rekstrarsamning, eins og gert er við stærstu félögin hér í bænum. En félag eldri borgara hefur vaxið mikið undanfarin ár,“ sagði þessi formaður félagsins til áratugs.
„Það eru stækkandi kynslóðirnar sem eru að komast á eftirlaunaaldur. Þá þykir við hæfi að ganga til liðs við okkur í Félagi eldri borgara – vegna þess að hér er ungt eldra fólk. En í raun og veru eru þrjár kynslóðir sem heyra til félags eldri borgara hér hjá okkur. Við eigum sex félaga sem eru 100 ára og eldri,“ sagði Valgerður og að ganga mætti í félagið sextugur.
„Mér finnst stórt skref stigið. Þetta eru tímamót í sögu félagsins sem verður 58 ára gamalt 26. mars næstkomandi,“ sagði Valgerður þegar hún skrifaði undir rekstrarsamninginn við bæjarstjórann.
Samningurinn hljóðar upp á húsnæði fyrir félagsstarfið en félagið greiðir allan rekstrarkostnað. Þá leggur bærinn 3,5 stöðugildi starfsmanna, þar af 1 stöðugildi verkefnastjóra sem fer með daglega umsjón. Hafnarfjarðarbær um starfsmanna- og launatengdan kostað. Þá greiðir bærinn viðhald og búnað og greiðir hálfa milljón í umsjón viðburða. Þá fer 250 þúsund til verkefna unnin af hendi stjórnar og nefnda og fyrir almennu skrifstofuhaldi. Gildistíminn er út árið 2027.
Félagið er framsýnt sem sést meðal annars á því að það var tilnefnt sem UT-fjölbreytileika fyrirmynd 2025 á UT-messunni sem haldin var í síðustu viku. Félagið var tilnefnt fyrir að taka á móti félögum á nútímalegan hátt.
„Við erum mjög stolt af því og þó að við höfum ekki fengið verðlaunin voru þarna mestu tæknifyrirtæki á landinu. Við erum komin í þeirra hóp og það vakti mikla athygli,“ segir Valgerður. „Til hamingju öll.“ Svona hljómaði tilnefningin:
„Félag eldri borgara í Hafnarfirði Félagið vinnur markvisst gegn einmanaleika og einangrun. Félagsstarfið er sjálfbært. Á árinu 2018 var hvatinn að hætta að selja kaffi og bjóða það í nafni félagsins. Stafræn félagskírteini voru tekin upp 2023 sem viðbótarvalkostur. Árið 2024 var starfsemin kynnt á heimasíðu febh.is á íslensku, ensku og pólsku. Samhliða gaf félagið út vikudagskrá félagsstarfsins á íslensku, ensku og pólsku. Árið 2025 var sett upp ný heimasíða á grunni þeirrar gömlu, tilgangurinn er að gera hana aðgengilegri og einfaldari. Félagið setur sér það að markmiði að mæta eldra fólki í nútímasamfélagi til að tryggja að enginn verði undanskilinn vegna tungumála eða menningarmunar.“
Félagið vinnur markvisst gegn einmanaleika og einangrun. Félagsstarfið er sjálfbært. Á árinu 2018 var hvatinn að hætta að selja kaffi og bjóða það í nafni félagsins. Stafræn félagskírteini voru tekin upp 2023 sem viðbótarvalkostur. Árið 2024 var starfsemin kynnt á heimasíðu febh.is á íslensku, ensku og pólsku. Samhliða gaf félagið út vikudagskrá félagsstarfsins á íslensku, ensku og pólsku. Árið 2025 var sett upp ný heimasíða á grunni þeirrar gömlu, tilgangurinn er að gera hana aðgengilegri og einfaldari. Félagið setur sér það að markmiði að mæta eldra fólki í nútímasamfélagi til að tryggja að enginn verði undanskilinn vegna tungumála eða menningarmunar.“
Valdimar sagði Hafnarfjarðarbæ stoltan af því að formgera rekstrarsamninginn með þessum hætti. „Þetta er búið að vera stuðningur við félagið í mörg ár og nú væri bætt í,“ sagði hann. Fjölskylduráð hafi verið einhuga um það.
„Starfið hér í þessu húsi er til fyrirmyndar og eftir því tekið út um allt land,“ sagði Valdimar. „Þetta er stór dagur og ánægjulegt að geta formfest samstarfið í þessum samning.“
Til hamingju öll með frábært félag og árangur!
Seinka þarf haustinnritun í grunnskóla. Unnið er hörðum höndum að því að leysa málið.
Þjónustusamningur út árið 2027 hefur verið undirritaður við Félag eldri borgara í Hafnarfirði. Félagið er framsýnt og var tilnefnt til…
Víðistaðaskóli frumsýnir söngleikinn Mamma mía! á föstudag. Fimm sýningar, tvær þegar uppseldar og 70% miðanna þegar seldur.
Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2026. Fyrsta viðmið um umsóknarfrest…
Hafnfirski leikskólinn Álfasteinn fær Orðsporið 2026 á Degi leikskólans, sem er í dag, 6. febrúar. Hefðbundið er að veita Orðsporið,…
Lítið vatn er í Hamarskotslæknum vegna viðgerða á fráveitulögn sem liggur í honum. Lækurinn verður aftur stíflaður á morgun og…
Samkvæmt nýrri þjónustukönnun Gallup eru níu af hverjum tíu íbúum ánægðir með Hafnarfjörð sem búsetustað eða 91%. Talan hækkar milli…
Fyrsta vinnustofan af fjórum um lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna verður haldin í Nýsköpunarsetrinu næsta laugardag.
Margt er í boði á Vetrarhátíð 2026. Rýndu í dagskrána og fáðu innblástur við uppröðunina. Þannig verður helgin frábær.
Leikararnir Bjarni og Gúa Margrét, jazzband og Sundhöllin okkar leika aðalhlutverkið þegar kvikmyndin When Harry met Sally lifnar við hér…