Þverfaglegt bakland um börn í viðkvæmri stöðu

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Samstarfsyfirlýsing um að stuðla saman að farsæld barna í viðkvæmri stöðu var undirrituð í dag. 150 einstaklingar sem vinna saman að velferð hafnfirskra barna hittust á vinnustofu í Kaplakrika og skerptu á ferlunum.

150 á vinnustofu um börn

„Börnin eru framtíðin en þau eru líka nútíðin. Þau eru hér og nú, og þau þurfa á okkur að halda strax í dag,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann setti vinnustofu sem 150 sem vinna að vegferð hafnfirskra barna sátu í Kaplakrika í dag.

Fulltrúar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Hafnarfjarðarbæjar og framhaldskólar í Hafnarfirði rituðu í dag undir samstarfsyfirlýsingu um að vinna saman að því að stuðla að farsæld fyrir börn sem eru í viðkvæmri stöðu í Hafnarfirði og draga úr líkum á ítrekuðu ofbeldi.

Heilt þorp ali upp börnin

Bæjarstjóri sagði í upphafi vinnustofunnar að farsæld barns verði ekki tryggð af einni stofnun, heldur af fólki sem tali saman, deilir upplýsingum og bregðist við snemma.

„Það þarf heilt þorp til að ala upp barn og hér í Hafnarfirði ætlum við að tryggja að þorpið okkar sé samstillt, vakandi og geisli af hlýju og öryggi,“ sagði hann. „Við vitum að börn í viðkvæmri stöðu eru þau sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða vanrækslu eða eru sjálf komin í aðstæður þar sem þau þurfa stuðning okkar allra. Það er skylda okkar að bregðast við.“

Undanfarna mánuði hafi verið unnið að því að móta verklag og samráð. „Þetta er ekki bara pappírsvinna, þetta er grunnurinn að raunverulegu samstarfi sem getur bjargað barni, og breytt lífi þess til hins betra.“

Taka ber snemma á málum

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, ritaði undir yfirlýsinguna fyrir hönd embættisins: „Samvinna skiptir öllu máli fyrir börn í viðkvæmri stöðu svo mál séu leyst á sem farsælastan hátt,“ segir hún. Mikilvægt sé að taka snemma á málum og hafa stuttar boðleiðir.

Valdimar lagði áherslu á að samstarfsyfirlýsingin sé ekki formsatriði, heldur loforð. „Loforð um að við ætlum að hlusta, læra hvert af öðru og skapa vettvang þar sem enginn dettur á milli kerfa.“ Samstarfsyfirlýsingin sé merki um að  fylgst verði með velferð og tryggt að þjónusta sé samfelld og samþætt. „Þetta þýðir að enginn á að standa einn. Ekki barn, ekki fjölskylda, og ekki starfsmaður sem vill gera rétt en veit ekki hvert hann á að leita.“

Best þegar unnið er þétt saman

Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri frístundastarfs og forvarna Hafnarfjarðarbæjar, segir vinnustofur sem þessar mikilvægar til að þétta raðirnar svo baklandið við börn í viðkvæmri stöðu sé traust og sterkt. Settir hafi verið saman tengiliðalistar og verklagið kortlagt.

„Þessi dagur gefur okkur svo tækifæri til að hlusta á alla sem vinna með börnum og sjá hvort við getum gert enn betur. Við viljum vera samfélag sem grípur börn í viðkvæmri stöðu og gerum það best þegar við vinnum þétt saman,“ segir Stella.

 

Ábendingagátt