Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Til hamingju Haukar með 85 árin ykkar. Íþróttir hafa lengi verið hluti af menningu Hafnarfjarðarbæjar. Úr okkar röðum kemur stór hópur afreksfólks á fjölbreyttu sviði sem fær hjörtu okkar til að slá í takt og hafnfirska stoltið til að rísa.
Afmæliskveðja frá Hafnarfjarðarbæ
Það er hverju samfélagi dýrmætt og mikilvægt að hafa innan sinna raða öflug íþróttafélög og einstaklinga sem með sjálfboðastarfi sínu hafa byggt og byggja enn upp faglegt og flott starf gagngert til að virkja einstaklinga á öllum aldri til hreyfingar og heilsubótar. Mikilvægi íþrótta og áhrif þeirra á samfélagið eru margvísleg. Íþróttir stuðla ekki bara að betri heilsu og bættri líðan heldur spila þær líka stórt hlutverk í forvörnum barna og unglinga, framleiðni starfsmanna á öllum aldri, félagslegri þátttöku og heilsusamlegu líferni til lengri tíma litið.
Íþróttir hafa lengi verið hluti af menningu Hafnarfjarðarbæjar. Úr okkar röðum kemur stór hópur afreksfólks á fjölbreyttu sviði sem fær hjörtu okkar til að slá í takt og hafnfirska stoltið til að rísa. Afreksfólk sem er góð fyrirmynd fyrir unga fólkið okkar og gangandi dæmi um að draumar geti orðið að veruleika. Hér er um að ræða einstaklinga sem alist hafa upp innan raða t.a.m. Hauka, einstaklinga sem hafa fengið umgjörð, þjálfun og hvatningu við hæfi. Knattspyrnufélagið Haukar hefur svo sannarlega sinnt sínu hlutverki af sóma þau 85 ár sem það hefur verið til.
Ég er stoltur af afrekum íþróttafólks okkar Hafnfirðinga. Ég er stoltur af því samfélagi sem Haukamenn hafa byggt upp á Ásvöllum. Ekki síst er ég stoltur af þeim einstaklingum sem taka virkan þátt í skipulögðu starfi í sjálfboðavinnu sinni, áhugans og gleðinnar vegna.
Til hamingju Haukar með 85 árin!
F.h. Hafnarfjarðarbæjar
Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…