Til hamingju Víðivellir!

Fréttir

Leikskólinn Víðivellir fagnar 40 ára afmæli skólans í dag þann 28. febrúar. Haldið var upp á afmælið með margvíslegum hætti. Gestum var boðið í í afmælissöngstund á sal með elstu börnunum og eftir hádegið fóru börnin í skrúðgöngu um hverfið og sungu hástöfum afmælislagið og söngvana um Víðivelli og Hafnarfjörð.

Leikskólinn Víðivellir fagnar 40 ára afmæli skólans
í dag þann 28. febrúar. Haldið var upp á afmælið með margvíslegum hætti. Gestum
var boðið í í afmælissöngstund á sal með elstu börnunum og eftir hádegið fóru
börnin í skrúðgöngu um hverfið og sungu hástöfum afmælislagið og söngvana um Víðivelli
og Hafnarfjörð.

Leikskólinn Víðivellir var
formlega tekinn í notkun 28. febrúar 1977 og þá sem nýtt dagvistunarheimili sem
ætlað var að yrði opið alla daga frá kl. 7:30 – 18:30, nema laugardaga. Dagvistunarheimilið átti
að leysa þarfir forgangshópa í bænum um dagvistunarpláss. Opnunin þótti marka
mikinn og merkan áfanga í dagvistunarmálum í Hafnarfirði og um að ræða fyrsta barnaheimilið
sem bærinn starfrækti. Þá hafði bærinn rekið dagheimili að Hörðuvöllum um
áratuga skeið í samvinnu við verkakvennafélagið Framsókn. Hvatamenn að byggingu
Víðivalla voru Lionsmenn og konur í kvenfélaginu Hringnum.

Leikskóli án aðgreiningar

Leikskólinn
Víðivellir hefur verið rekinn sem skóli án aðgreiningar frá árinu 1992 og unnið
hefur verið með börn með sérþarfir og fatlanir á ýmsum sviðum. Rúmgóður hreyfisalur
er í skólanum og hefur rík áhersla verið lögð á hreyfingu og holla lífshætti í
daglegu lífi nemenda og starfsmanna skólans. Leikskólinn hefur í tvígang fengið
viðurkenningar fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar fyrir fagmennsku og skólaþróun í
skólanum og tilnefningu Nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.

Í dag eru 126 börn á Víðivöllum og 44 starfsmenn.

Ábendingagátt