Tilboð lögaðila í Hraunskarð 2

Fréttir

Óskað eftir tilboðum lögaðila í 32 íbúða fjölbýlishúsalóð að Hraunskarð 2.  Tilboð þurfa að berast fyrir kl. 10 mánudaginn 19. nóvember. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina og teljast tilboð undir lágmarksverði ógild.

Óskað eftir tilboðum lögaðila í 32 íbúða fjölbýlishúsalóð að Hraunskarð 2. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina og teljast tilboð undir lágmarksverði ógild.  Tilboð í lóð ásamt öllum fylgigögnum þurfa að berast fyrir kl. 10 mánudaginn 19. nóvember. Sama dag á sama tíma verða tilboðin opnuð.  Tilboð í lóð verða tekin fyrir á bæjarráðsfundi fimmtudaginn 22.  nóvember.

Allar nánari upplýsingar um allar lóðirnar er að finna HÉR

Lausar lóðir til úthlutunar í Skarðshlíð

Hafnarfjarðarbær auglýsir lóðir til einstaklinga og lögaðila í fjölskylduvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Í skipulagi og hönnun er rík áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Svæðið liggur sunnan og vestan Ásfjalls og er skjólsælt svæði umvafið gríðarlegri náttúrufegurð. Um er að ræða einbýlishúsa-, parhúsa-, raðhúsa-, tvíbýlishúsa- og fjölskylduhúsalóðir til einstaklinga og lögaðila. Einstaklingar ganga fyrir við úthlutun einbýlis- og parhúsalóða. Tveir eða fleiri einstaklingar þurfa að sækja sameiginlega um þær lóðir sem telja fleiri en eina íbúð. Hjón og sambúðarfólk teljast sem einn einstaklingur.  

Sótt er um rafrænt á MÍNAR SÍÐUR 

Umsókn um lóð verður tekin fyrir á bæjarráðsfundi þegar öll fylgigögn eru komin.

Ábendingagátt