Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í morgun klukkan tíu voru opnuð tilboð frá lögaðilum í 26 tvíbýlishúsalóðir og 12 raðhúsalóðir í Skarðshlíð, 2. áfanga, sem auglýstar voru í sumar. Alls bárust tilboð frá 10 lögaðilum en þau voru lesin upp í morgun að viðstöddum fulltrúum nokkura bjóðenda.
Á sama tíma rann út frestur einstaklinga til að skila inn tilboðum í einbýlishúsalóðir og parhúsalóðir en rúmlega rúmlega 80 umsóknir bárust í 31 einbýlis- og parhúsalóð sem auglýstar voru til úthlutunar.
Hafnarfjarðarbær er nú að fara yfir tilboðin og meta tilboðin.
Eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði hefur vaxið síðustu misseri og er nú svo komið að íbúar eru orðnir rúmlega 29.000 talsins. Breytingar á skipulagi í Hafnarfirði og uppbygging innviða hefur miðað að því að svara þessari auknu eftirspurn eftir húsnæði.
Áfangi tvö í nýju íbúðarhverfi í Skarðshlíð hefur undirgengist töluverðar skipulagsbreytingar síðustu mánuði. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði tilbúnar til afhendingar og framkvæmda síðla hausts 2017. Dregið var úr fjölda einbýlishúsalóða í hverfinu og þess í stað fjölgað tvíbýli, þríbýli og fjórbýli. Íbúðum var þannig fjölgað úr 133 í 154 til að svara vaxandi þörf á markaði.
Húsagötum var breytt í vistgötur sem þýðir m.a. að unnið er ítarlega með nýtingu gatnarýmis og ásýnd auk þess sem komið er fyrir djúpgámum í stað sorptunna við hvert hús. Vistgötur hafa líka þann eiginleika að að bæta hljóðvist og eru til þess fallnar að efla samfélagskennd eða félagslega samheldni í hverfum með því að skapa rými fyrir íbúa sem býður upp á félagsleg samskipti. Ákveðnar lóðir í hverfinu hafa þegar verið teknar frá fyrir nýtt íbúarekið leigufélag í Hafnarfirði sem hefur það að markmiði að lækka leiguverð, draga úr yfirbyggingu og auka aðkomu og þátttöku íbúa sjálfra. Hvatinn á bak við verkefni er að bregðast við þörf á öruggu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…