Tilkynning vegna starfsdags í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu

Fréttir

Allir leikskólar á höfuðborgarsvæðinu opna klukkan 12 á morgun vegna hertra sóttvarnarráðstafana sem taka gildi nú á miðnætti. Til að innleiða breytt skipulag hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að starfsdagur verði á leikskólum til hádegis á morgun, fimmtudag. 

Áríðandi tilkynning – starfsdagur til kl. 12 fimmtudaginn 25. mars 

Allir leikskólar á höfuðborgarsvæðinu opna klukkan 12 á morgun vegna hertra sóttvarnarráðstafana sem taka gildi nú á miðnætti. Til að innleiða breytt skipulag hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að starfsdagur verði á leikskólum til hádegis á morgun, fimmtudag. 

Markmiðið með þessari ráðstöfun er að starfsemi leikskóla með breyttu skipulagi verði farsælt. Leikskólar munu starfa eftir bestu getu með takmörkunum sem hljótast af reglugerðinni en hún heimilar aðeins að tíu fullorðnir einstaklingar séu samankomnir í hverju sóttvarnarhólfi.

Ábendingagátt