Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarvatns og Höfða

Fréttir

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarvatns og Höfða í Hafnarfirði skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Breytingin nær til reits 1 sem er aðstaða skógræktarfélags Hafnarfjarðar á núverandi uppdrætti og felur í sér stækkun og fjölgun byggingarreita fyrir hús, gróðurhús og kennslustofu ásamt lóðarstækkun.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarvatns og Höfða í Hafnarfirði skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010. 

Breytingin nær til reits 1 sem er aðstaða skógræktarfélags Hafnarfjarðar á núverandi uppdrætti og felur í sér stækkun og fjölgun byggingarreita fyrir hús, gróðurhús og kennslustofu ásamt lóðarstækkun.  

Breytingartillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og skipulagsþjónusta á Norðurhellu 2 og í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6, frá 15. janúar – 26. febrúar 2019.

Sjá tillöguna HÉR

Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.  Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna. Skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 26. febrúar 2019 eða á netfangið berglindg@hafnarfjordur.is 

Ábendingagátt