Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að sýningu í Hafnarborg haustið 2017. Frestur til að skila inn tillögum rennur út sunnudaginn 30. október 2016.
Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að sýningu í Hafnarborg haustið 2017. Sýningin Tilraun – leir og fleira sem nú stendur yfir í safninu var valin úr athyglisverðum tillögum sem sendar voru inn á síðasta ári. Markmiðið með því að óska eftir innsendum tillögum er að fá tækifæri til að velja til samstarfs sýningarstjóra sem leggur fram áhugaverða tillögu að sýningu en jafnframt að kalla til leiks nýtt fólk. Þannig er sérstaklega hugað að því að veita tækifæri sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Það hefur sýnt sig að fyllsta ástæða er til að halda úti slíku verkefni, en út frá því hafa orðið til fjölbreyttar og áhugaverðar sýningar sem vakið hafa athygli og verið vel sóttar. Frestur til að skila inn tillögum rennur út sunnudaginn 30. október 2016. Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja verk listamanna en einnig koma til greina sýningar sem fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns. Jafnt koma til greina sýningar á verkum samtímalistamanna og sýningar sem fela í sér sögulega greiningu. Umsóknarferlið er tvískipt og eru þeir sem áhuga hafa á að takast á við þetta verkefni hvattir til að kynna sér verkefnið frekar hér. Árið 2011 hóf haustsýningaröðin göngu sína með sýningunni Í bili sem unnin var af Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mannfræðingi, 2012 var sett upp sýningin SKIA í sýningarstjórn Guðna Tómassonar listsagnfræðings og Anna María Bogadóttir menningarfræðingur og arkitekt vann sýninguna Vísar – húsin í húsinu árið 2013. Á árinu 2014 var hugmynd Helgu Þórsdóttur, menningarfræðings og myndlistarmanns, að sýningunni Rás valin úr áhugaverðum tillögum. Haustið 2015 voru það listfræðingarnir Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir með sýninguna Heimurinn án okkar og í ár var tillaga hönnunartvíeykisins TOS sem varð fyrir valinu en TOS er skipað þeim Hildi Steinþórsdóttur, arkitekt, og Rúnu Thors, vöruhönnuði. Sýningin ber nafnið Tilraun – leir og fleira og er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar. Eins og fyrr þá komu tillögurnar frá fólki úr ýmsum geirum, listamönnum og fræðimönnum af ólíkum sviðum en einnig frá fólki með sérmenntun á sviði sýningarstjórnar. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir þannig að safnið verði vettvangur þar sem myndlist fær notið sín, mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Sýningarnar og málþing sem skipulögð hafa verið samhliða þeim hafa skapað markverðan vettvang umræðna og þróunar í Hafnarborg. Sendið tillögur á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is Merkið póstinn: Haust2017.
Nánari upplýsingar í síma Hafnarborgar 585 5790 og á heimasíðu safnsins
Bæjarstjórn og starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sendir íbúum og gestum heilsubæjarins Hafnarfjarðar hugheilar hátíðarkveðjur með hjartans þökk fyrir samstarf og samveru á…
Hér má sjá hvernær sundlaugarnar okkar, bókasafnið, byggðasafnið, þjónustuver og Hafnarborg eru opnar yfir hátíðarnar. Einnig má hér finna hagnýtar…
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…