Tilnefningar til hvatningaverðlauna
Foreldraráð Hafnarfjarðar leitar nú eftir tilnefningum vegna hvatningarverðlauna ráðsins, sem verða afhent á þann 9. apríl næstkomandi.
Foreldraráð Hafnarfjarðar leitar nú eftir tilnefningum vegna hvatningarverðlauna ráðsins, sem verða afhent á þann 9. apríl nk.
Hefur einhver í þínu nærumhverfi stuðlað að eða lagt sitt að mörkum til:
- aukins foreldrasamstarfs
- betri tengsla heimilis, skóla og samfélagsins
- frumkvöðlastarfs í grunnskóla
- óeigingjarns starfs í þágu grunnskólabarna
Tekið er við tilnefningum ásamt rökstuðningi til 1. apríl: https://goo.gl/forms/gu2juA2rvEIYo1oL2
Markmið hvatningarverðlaunanna er að vekja athygli á gróskumiklu starfi og nýsköpun í grunnskólum Hafnarfjarðar, sem og verkefnum sem stuðla að auknu samstarfi heimilis, skóla og samfélagsins. Stjórn ráðsins velur úr tilnefningum og byggir niðurstöður sínar á rökstuðningi þeim fylgjandi.