Tímabundin lokun á gatnamótum við Fjarðarhraun

Fréttir

Reykjanesbraut verður lokuð kl. 19 í kvöld, mánudaginn 6. maí, á gatnamótum við Fjarðarhraun hjá Kaplakrika í Hafnarfirði, vegna framkvæmda. Reiknað er með að brautin verði opnuð að nýju í nótt.

Reykjanesbraut verður
lokuð kl. 19 í kvöld, mánudaginn 6. maí, á gatnamótum við Fjarðarhraun hjá Kaplakrika í
Hafnarfirði, vegna framkvæmda.

Umferð á Reykjanesbraut mun aka hjáleið um Fjarðarhraun og hringtorg við Flatahraun / Kaplakrika. Umferð frá Fjarðarhrauni sem ætlar til austurs inn á
Reykjanesbraut er beint á að aka Reykjanesbraut og fara um hringtorg við
Lækjargötu. Hjáleiðir eru merktar á viðeigandi stöðum meðan á framkvæmdum
stendur. Reiknað er með að Reykjanesbraut verði opnuð að nýju í nótt.  Sjá nánar HÉR

Vegfarendur eru beðnir að
sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við akstur um svæðið.

Ábendingagátt