Tímabundin lokun á gatnamótum við Fjarðarhraun
Reykjanesbraut verður lokuð frá kl. 19 í kvöld þriðjudaginn 7. maí, vegna malbikunar á gatnamótum við Fjarðarhraun hjá Kaplakrika í Hafnarfirði.
Reykjanesbraut verður lokuð frá kl. 19 í kvöld þriðjudaginn 7. maí, vegna malbikunar á gatnamótum við Fjarðarhraun hjá Kaplakrika í Hafnarfirði.
Umferð á Reykjanesbraut mun aka hjáleið um Fjarðarhraun og hringtorg við Flatahraun / – Kaplakrika. Umferð frá Fjarðarhrauni sem ætlar til austurs inn á Reykjanesbraut er beint á að aka Reykjanesbraut og fara um hringtorg við Lækjargötu. Hjáleiðir eru merktar á viðeigandi stöðum meðan á framkvæmdum stendur. Reiknað er með að Reykjanesbraut verði opnuð að nýju kl. 22. Sjá nánar HÉR
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við akstur um svæðið.