Tímamótasamingur við öflugt listdansfélag

Fréttir

Undirritaður hefur verið samningur við Listdansskóla Hafnarfjarðar sem mun styðja enn frekar þann fjölbreytileika sem ríkir í tómstundum og afþreyingu innan sveitarfélagsins. Listdansskólinn býður upp á skipulagðar dansæfingar og tekur samstarfið mið af gildi lista, hreyfingar og íþróttaiðkunar fyrir uppeldis- og forvarnarstarf.

Hafnarfjarðarbær gerir þjónustusamning við Listdansskóla
Hafnarfjarðar

Íþróttafélögin í Hafnarfirði og Hafnarfjarðarbær hafa gert
samninga sín á milli um þjónustu og rekstur félaganna til að tryggja bæjarbúum
aðgengi að fjölbreyttum íþróttum og til að reka íþróttamannvirkin. Nú hefur
verið undirritaður samningur við Listdansskóla Hafnarfjarðar sem mun styðja enn
frekar þann fjölbreytileika sem ríkir í tómstundum og afþreyingu innan
sveitarfélagsins. Listdansskólinn býður upp á skipulagðar dansæfingar og tekur
samstarfið mið af gildi lista, hreyfingar og íþróttaiðkunar fyrir uppeldis- og
forvarnarstarf.

Hátt í 300 börn stunda æfingar hjá félaginu

Þjónustusamningurinn felur jafnframt í sér að
Listdansskólinn þarf, líkt og önnur félög á sambærilegum samningi, að uppfylla
ýmis gæðaviðmið s.s. varðandi gæði innra starfs, kynjahlutföll og jafnréttis-
og forvarnarmál auk þess að tryggja að félagið sé rekið í lýðræðislegum anda. Hátt
í 300 börn stunda æfingar hjá Listdansskólanum á veturna og er það fjöldi
skráðra barna sem ræður styrkupphæð bæjarins hverju sinni.

IMG_3008

Tímamótasamningur – fyrsta félagið fyrir utan ÍBH

Aðildarfélög í Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar – ÍBH eru 24
talsins. Öll þessi félög eru með þjónustusamning við Hafnarfjarðarbæ og hafa
þannig skuldbundið sig til að uppfylla ákveðin gæðaviðmið og rekstur sem talar
til takti við heilsueflandi áherslur bæjarins.
Listdansskóli Hafnarfjarðar er fyrsta félagið utan ÍBH sem skrifar undir
þjónustusamning við sveitarfélagið og er hér því um tímamótasamning að ræða því
ekki hefur verið gerður sambærilegur samningur við aðra en félög í
íþróttahreyfingunni. Markmið sveitarfélagsins með þjónustusamningum er að stuðla að því að allir bæjarbúar
eigi þess kost að iðka tómstundir og íþróttir við sem hagstæðust skilyrði óháð
efnahag fjölskyldna.

Sjá þjónustusamning í lið 7 í afgreiðslu bæjarstjórnar 

Um Listdansskóla Hafnarfjarðar

Listdansskólinn býður upp á skipulagða dans- og
íþróttaþjálfun í Hafnarfirði. Starfsemi Listdansskóla Hafnarfjarðar hófst í
janúar 1994 og þá stunduðu 12 nemendur nám við skólann. Árið 2015 voru nemendur
orðnir 420 talsins og stunduðu þeir nám í barnadönsum, barnaballett,
barnadjassdansi, klassískum ballett, djassdansi, hipp hoppi, showdansi, silki,
nútímadansi og dönsum fyrir 20 ára og eldri. Skólinn er einkarekinn og fer
kennslan fram í Helluhrauni 16-18. Eigandi og skólastjóri er Eva Rós
Guðmundsdóttir. Listdansskóli Hafnarfjarðar er með árlega vorsýningu í
Borgarleikhúsinu þann 1.maí. Auk þess sýna nemendur á jólasýningu skólans sem
er haldin annað hvort í Gaflaraleikhúsinu eða sölum skólans. Árlega stendur
skólinn einnig fyrir Dansbikarnum, sem er innanhússkeppni skólans þar sem
nemendur fá að spreyta sig í að semja eigin dansa. Bæði kennarar og meðlimir
nemendafélags skólans hafa haldið utan um keppnina sem ætíð vekur mikla lukku
bæði hjá nemendum og foreldrum. Nemendur 13 ára og eldri hafa kost á því að
fara í dansferð með skólanum til London annað hvert ár. Þar verja þau 4-6 dögum
með kennurum skólans og fara í danstíma, dansworkshop og á söngleik. Skólinn
hefur einnig tekið þátt í danskeppnum erlendis. 

Upplýsingar um Listdansskólann eru teknar af vef skólans

Ábendingagátt