Tíu styrkir úr Húsverndarsjóði

Fréttir

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar veitti á dögunum tíu styrki úr Húsvendarsjóði. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta og námu þeir þremur milljónum króna. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði.

Styrkir til varðveislu og viðhalds

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbær veitti á síðasta vetrardegi tíu styrki úr Húsvendarsjóði við hátíðlegt tilefni í Hafnarborg. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta. Samtals námu þeir þremur milljónum króna. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði og eru styrkirnir veittir til viðhalds og endurbóta.

Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir að styrkja eftirfarandi verkefni:

  • Auðun Helgason, Lækjargata 3, 100.000 kr.
  • Ingvar Högni Ragnarsson, Hverfisgata 37, 100.000 kr.
  • Þorsteinn Pálmar Einarsson, Suðurgata 30, 200.000 kr.
  • Sturla Haraldsson, Suðurgata 11, 250.000 kr.
  • Andrew Kurtis Ibsen, Brekkugata 5, 250.000 kr.
  • Garðar Björgvinsson, Merkurgata 9, 200.000 kr.
  • Guðni Kjartansson, Suðurgata 71, 250.000 kr.
  • Tómas Ingi Þórðarson, Skólabraut 1, 250.000 kr.
  • Christian Schultze, Austurgata 38, 200.000 kr.
  • Einar Örn Ágústsson, Hverfisgata 6B, 200.000 kr.

Húsverndarsjóður – styrkir til viðhalds og endurbóta eldri húsa

Hafnarfjarðarbær auglýsti eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar og rann umsóknarfresturinn út þann 28. febrúar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði og veitir styrki til viðhalds og endurbóta. Sjóðnum er einnig heimilt að veita styrki til viðhalds og verndunar annarra mannvirkja í bænum sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss og sjónarmið húsverndar.

Mat á umsóknum

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar úthlutar styrkjum úr húsverndarsjóði að fenginni umsögn Byggðasafns Hafnarfjarðar. Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, til dæmis vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildi hennar fyrir varðveislu byggingararfs Hafnarfjarðar. Áhersla er lögð á að styrkja framkvæmdir sem færa ytra byrði húsa svo sem glugga og klæðningu til upprunalegs horfs.

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í reglugerð húsverndarsjóðs Hafnarfjarðar

Innilega til hamingju öll með styrkinn sem fegrar og bætir samfélagið okkar!

Ábendingagátt