Tóbakskönnun – 43% sölustaða virða ekki aldursmörk

Fréttir

Í lok janúar stóð Hafnarfjarðarbær fyrir könnun á því hvort unglingar gætu keypt sígarettur á sölustöðum tóbaks í Hafnarfirði. Sex sölustaðir seldu unglingunum sígarettur af 14 sölustöðum eða 43% sölustaða. Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðarbæjar lýsti yfir áhyggjum af þessari þróun á fundi sínum í gær og leggur áherslu á það að tíðni þessara kannana verði aukin og að ítreka þurfi við söluaðila að virða aldursmörk. 

Í lok janúar stóð Hafnarfjarðarbær fyrir könnun á því hvort
unglingar gætu keypt sígarettur á sölustöðum tóbaks í Hafnarfirði. Tveir unglingar úr 10. bekk fóru á sölustaði undir eftirliti starfsmanna
Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur. Sex sölustaðir seldu
unglingunum sígarettur af 14 sölustöðum eða 43% sölustaða sem eru aðgengilegir
ungu fólki. Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðarbæjar lýsti yfir áhyggjum af þessari þróun á fundi sínum í gær og leggur áherslu á það að tíðni þessara kannana verði aukin og að ítreka þurfi við söluaðila að virða aldursmörk. 

Markmiðið er að enginn sölustaður selji börnum og unglingum tóbak

Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt. Frekari
upplýsingar úr könnuninni eru sendar Heilbrigðiseftirliti Kópavogs- og
Hafnarfjarðarsvæðisins þar sem unnið verður úr þeim eins og lög gera ráð fyrir.
Sölustöðunum er send niðurstaða sem sýnir hvort viðkomandi staður seldi
börnunum tóbak. Búast má við því að þeir staðir sem seldu börnum tóbak fái
áminningu frá heilbrigðiseftirliti eins og kveður á um í lögum um tóbaksvarnir. Könnunum um aðgengi barna að tóbaki í Hafnarfirði hefur farið fækkandi
síðustu misseri sökum þess að sígarettureykingar hafa minnkað en ljóst er að
minna aðhald veldur því að auðveldar er fyrir börn í Hafnarfirði að útvega sér
tóbak. Hafnarfjarðarbær hefur síðustu tvo áratugi athugað aðgengi barna að tóbaki
og veitt sölustöðum stöðugt aðhald.

Meirihluti sölustaða í Hafnarfirði hefur gert sérstakt samkomulag við íþrótta- og tómstundafulltrúa sem miðar að því
að leita allra leiða til að koma í veg fyrir sölu tóbaks til barna. Í síðustu
könnununum hafa komið slakari og slakari niðurstöður. Markmiðið er að enginn
sölustaður selji börnum tóbak. Því mun íþrótta- og tómstundafulltrúi í umboði Íþrótta-
og tómstundanefndar Hafnarfjarðar halda áfram með þessar kannanir. Niðurstaðan
er sýnd á mynd í samanburði við síðustu ár. 

Í 8. gr laga um tóbaksvarnir eru skýr fyrirmæli um sölu tóbaks. Tóbak
má hvorki selja né afhenda einstaklingum yngri en 18 ára. Bann þetta skal
auglýst með áberandi hætti þar sem tóbak er selt. Leiki vafi á um aldur
kaupandans getur sala því aðeins farið fram að hann sýni með skilríkjum fram á
að hann sé orðinn 18 ára.

Nánari upplýsingar veitir Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Netfang: geir@hafnarfjordur.is . Sími: 585-5754

Ábendingagátt