Tökum þátt í jólaskreytingakeppni íbúa og fyrirtækja 2025

Fréttir Jólabærinn

Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að setja upp stóru jólagleraugun og senda ábendingu um þau hús, þær götur og þau fyrirtæki sem þykja bera af í jólaskreytingunum í Hafnarfirði þetta árið.

Bendum á þau sem bera af

Íbúar og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði hafa heldur betur tekið hvatningunni um að skreyta hús sín og fyrirtæki og lýsa upp skammdegið. Nú styttist óðum í jól. Veitt verða verðlaun í jólabænum Hafnarfirði fyrir best skreyttu íbúðarhúsin, best skreyttu götuna og best skreytta fyrirtækið í Hafnarfirði í desember.

Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til þess að setja upp stóru jólagleraugun og senda ábendingu um það sem þeim þykir bera af í jólaskreytingunum í Hafnarfirði þetta árið. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar mun sjá um val á best skreytta húsinu.

Afhending viðurkenninga fer fram í Jólaþorpinu laugardaginn 20. desember.

Sendu inn þína ábendingu

Komdu ábendingu þinni á framfæri með því að fylla út formið hér fyrir neðan til og með 15. desember. Þar með ábending um hús, götu eða fyrirtæki komin í jólapott bæjarins um best skreytta húsið, best skreyttu götuna eða best skreytta fyrirtækið.

Best skreytta húsið eða gatan

Ábendingagátt